Hofsjökulsþjóðgarður. Verndargildi jarðminja innan hugaðra marka þjóðgarðs
Year: 2013
Type: dissertation
Abstract: Miklar umræður hafa farið fram um náttúru á miðhálendi Íslands á 10. áratug liðinnar aldar. Árið 1998 komu fram fyrstu tillögur að stofnun hálendisþjóðgarða sem hefðu að geyma helstu jökla á miðhálendi Íslands og aðliggjandi svæði. Hofsjökull er 1.765 metra hár þíðjökull sem er um 900 km2 að flatarmáli og stendur um 600 m.y.s. Landsvæðið þar í kring einkennist að mestu leiti af jökulminjum síðustu ísaldar og er ósnortið víðerni eitt helsta einkenni. Aðliggjandi svæði hafa hinsvegar vakið mikla athygli þar sem um mjög sérstæða náttúru er að ræða. Mörg svæðanna eru nú þegar á náttúruminjaskrá eða njóta verndar sem friðland eða náttúruvætti. Þó svo sum svæðin séu aðskilin með víðáttumiklum sandauðnum tengjast þau innbyrðis náttúruöflum sem mynduðu þau. Hægt er að rekja myndanir frá jarðsögutímabili sem kennt er við tertíer en langflestar eru þó tengdar síðasta jökulskeiði ísaldar og sumar frá hlýskeiði sem tengd eru við nútíma.
Source: Skemman
Author: Davíð Þór Óðinsson 1986
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Geology
Field: Earth and Planetary Sciences
Domain: Physical Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7019697603
