Hvatning til skipulagðar hreyfingar: „Það sem læra má af einstaklingum sem stunda skipulagða hreyfingu“
Year: 2020
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Hreyfing spilar mikilvægt hlutverk í lífi manneskjunnar en sýnt hefur verið fram á að hún hefur meðal annars jákvæð áhrif á líkamlega og andlega heilsu. Hreyfing einstaklinga fer sífellt minnkandi vegna örrar tækniþróunar og ljóst er að þörf er á aðgerðum til að auka hvatningu fólks til að innleiða hreyfingu í daglegt líf. \nMarkmið rannsóknar var að kanna með megindlegum hætti hvað hvetur einstaklinga til að stunda skipulagða hreyfingu og hvort og þá hvaða þáttur er ráðandi í því sambandi. Notast var við erlendan mælikvarða til að leitast svara við settu markmiði og alls fengust 233 svör frá þátttakendum sem leggja stund á skipulagða hreyfingu. \nÍ rannsókn þessari er fjallað um þrjár mismunandi tegundir hvatningar; innri hvatningu, ytri hvatningu og hvataleysi. Þessar tegundir hvatninga búa til mismunandi þátttökuhvata hjá einstaklingum til að stunda skipulagða hreyfingu. Þátttökuhvatar sem ræddir eru snúa að líkama, útliti, hreysti og hæfni og félagslegum og sálfræðilegum þáttum. \nHelstu niðurstöður leiddu í ljós að þættir sem snúa að jákvæðri heilsu líkt og staðhæfingin „ég hreyfi mig til að viðhalda góðri heilsu“ reyndust ráðandi þegar kemur að hvatningu til að stunda skipulagða hreyfingu. Sýnt var fram á að konur eru líklegri en karlar að búa yfir hvata til að stunda skipulagða hreyfingu vegna þátta líkt og jákvæð heilsa, liðleiki og streitustjórnun. Á meðan þættirnir samkeppni, félagsleg viðurkenning og styrkur og úthald eru líklegri hvataþættir fyrir karla. Munur milli kynja er um er að ræða þátttökuhvata reyndist mestur fyrir þáttinn samkeppni og því eru karlar líklegri en konur til að búa yfir hvata til að stunda skipulagða hreyfingu vegna þátta sem snúa að samkeppni. Sterk tengsl mældust milli fjölda æfinga í viku og undirþátttarins ánægju sem bendir til þess að því oftar sem einstaklingar sem stunda hreyfingu í viku, því líklegri eru þeir til að búa yfir hvata vegna þátta líkt og „mér finnst hreyfing ánægjuleg“, sem snúa að ánægju.
Source: Skemman
Author: Sigurlaug Rún Hjartardóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Social Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Keywords: exercise motivation, intrinsic motivation, extrinsic motivation, amotivation, exercise behavior, physical activity, self-determination theory, competence, relatedness, social support, health behavior change, barriers to exercise, self-efficacy, self-determination, goal setting, self-regulation
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7019751920
