Work

Hin fullkomna móðir? : ríkjandi viðmið og þungar kröfur : óformlegar umfjallanir áhrifavaldamæðra um mæðrun á opinberum vettvangi og óraunhæfar væntingar hversdagsmæðra um fullkomnun

Year: 2019
Type: dissertation
Abstract: Ritgerð þessi fjallar um hina fullkomnu móður, eða raunar leitina að henni. Skoðaðar eru fyrirliggjandi heimildir sem varpa ljósi á hugmyndir um mæður í sögulegu ljósi fram til dagsins í dag. Hér verður stuðst við félagslega samanburðarkenningu Festingers, og út frá sjónarhorni femínískra fræða skoðað hvernig samfélagsleg viðmið og kröfur endurspeglast í óformlegum umfjöllunum á samfélagsmiðlum og leitast við að svara því hvernig hversdagsmæður kunna að verða fyrir áhrifum af umfjöllunum áhrifavaldamæðra sem deila lífi sínu í máli og myndum á samfélagsmiðlum. Með augum Festingers verður skoðað hvernig ríkjandi viðmið, kröfur og væntingar speglast aftur til áhrifavaldamæðra, þeirra sem á samfélagsmiðlum áttu mögulega þátt í að móta og styrkja ríkjandi viðmið, sem jafnvel stigmagnast með stríðum straumi óformlegra umfjallana frá sívaxandi hópi áhrifavaldamæðra. Hér fléttast því saman þungar kröfur og viðmið samfélagsins til hversdagsmæðra við samanburð og áhrif áhrifavaldamæðra. Krafan um hina fullkomnu móður birtist víða og ekki síst í umfjöllun þekktra mæðra í samfélaginu. Sem reyndar mögulega, þegar upp er staðið og á bak við skjáinn, eru einnig mannlegar hversdagsmæður. \nLykilhugtök: Mæðrun, hversdagsmóðir, áhrifavaldamóðir, kynjahlutverk, áköf mæðrun
Source: Skemman
Author: Sandra Gestsdóttir
Language: Icelandic
Subfield: Gender Studies
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7019757471
Cites: 16
Cited by:
Related to: 10