Hreyfing til lífstíðar : þáttur skólaíþrótta og hlutverk íþróttakennarans
Year: 2020
Type: dissertation
Abstract: Samkvæmt rannsóknum fer hreyfing barna minnkandi eftir aldri og kyrrseta eykst. Jafnhliða hafa offita, ofþyngd og þunglyndi barna og ungmenna aukist á undanförnum árum og veldur það áhyggjum. Fjölmargar rannsóknir hafa sýnt fram á mikilvægi hreyfingar og þá sérstaklega fyrir börn og ungmenni þ.e. að þau hreyfi sig í að lágmarki sextíu mínútur á dag. Foreldrar og forráðamenn verða að vera vakandi yfir því að skólar landsins ná ekki að uppfylla hreyfiþörf barna og verður því að leita lausna svo hægt sé að uppfylla þá þörf annars staðar. Þar sem börn verja stórum hluta dagsins í skólanum ættu kennarar og starfsfólk skólans að gera allt í þeirra valdi til að skapa nemendum sem jákvæðasta upplifun og veita þeim fræðslu um mikilvægi líkamlegrar, andlegrar og félagslegrar vellíðunar. Kennari ætti sem dæmi að huga vel að eigin hegðun og framkomu í kringum nemendur vegna þess að nemendur sjá kennara sem fyrirmynd og getur því allt sem kennarinn gerir og segir haft áhrif á nemandann, jafnvel til frambúðar. Af viðtölum sem tekin voru við tvo einstaklinga með ólíka reynslu af skólaíþróttum, má sjá skýrt og greinilega að íþróttakennarar hafa áhrif á nemendur með hegðun sinni og framkomu. Auk þess sýna þau fram á hversu mikilvægar fjölbreyttar kennsluaðferðir eru í skólaíþróttum. Íþróttakennarar gegna mikilvægu hlutverki þar sem þeir sjá um hreyfiuppeldi barna í grunnskólum. Markmið þeirra er meðal annars að kenna nemendum að hreyfing ætti að vera til lífstíðar en ekki einungis kennslugrein sem þeir tengja við skóla. Íþróttakennari leggur meira upp úr því í dag að virkja alla nemendur í kennslustundinni og sýna öllum nemendum jákvæða athygli. Hann reynir að skapa jákvæða upplifun fyrir nemendur, svo þeir finni fyrir þeim jákvæðu áhrifum sem hreyfing getur haft á líkama og sál og gerir það með því að leggja áherslu á andlega líðan nemenda en ekki einungis þá líkamlegu.
Source: Skemman
Author: Daníela Guðlaug Hanssen
Institution: University of Akureyri
Language: Icelandic
Subfield: Education
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Keywords: physical activity, physical education, physical education teachers, children's physical activity, sedentary lifestyle, role models, student motivation, student well-being, teacher professional development, student participation in physical education, student self-esteem, student self-discipline, student self-regulation, student self-competence
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7019780483
