Hefur enskt barnaefni í snjalltækjum áhrif á enskukunnáttu íslenskra barna?
Year: 2017
Type: dissertation
Abstract: Þessi ritgerð er lögð fram til BA-prófs í íslensku á Hugvísindasviði Háskóla Íslands. Umfjöllunarefni ritgerðarinnar eru áhrif ensku á málkunnáttu íslenskra barna. Sérstaklega er fjallað um ensk áhrif í tengslum við aukna snjalltækjanotkun íslenskra barna. Mögulegar ástæður enskuaukningar í íslensku samfélagi eru ræddar og snjalltækjavæðingin skoðuð. Skilgreind eru hugtök eins og tvítyngi, annað mál og erlent mál og þau tengd við niðurstöður rannsóknarinnar. \nRannsókn var gerð á þremur börnum á mismunandi aldri. Markmið rannsóknarinnar var að kanna áhrif ensks barnaefnis í snjalltækjum á enskukunnáttu íslenskra barna. Yngsta barnið var drengur sem var tveggja og hálfs árs, barnið í miðjunni var stúlka sem var nýorðin fjögurra ára og elstur var sex ára drengur. Tilgangurinn með að prófa börn á mismunandi aldri var sá að sjá hvenær börn fara að greina á milli íslensku og ensku í barnaefni. Rannsóknin var framkvæmd þannig að börnunum voru sýndir teiknimyndaþættir á íslensku og ensku og fylgst með enskukunnáttu þeirra og hvort þau áttuðu sig á muninum á tungumálunum. Til þess að kanna enskan orðaforða þeirra enn frekar voru börnunum einnig sýndar myndir og þau spurð hvort þau þekktu ensku orðin yfir hlutina á myndunum. \nHelstu niðurstöður þessarar litlu rannsóknar eru þær að elsta barnið hafði mesta enskukunnáttu og virtist geta greint á milli íslensku og ensku í barnaefni. Einnig virðast niðurstöður könnunarinnar benda til að aðgengi barna að snjalltækjum skipti miklu máli fyrir enskukunnáttu þeirra þar sem viðmót og veitur eru að mestu leyti á ensku. Því meira aðgengi sem börn hafa að erlendu barnaefni í snjalltækjum því meiri virðist enskukunnátta þeirra vera.
Source: Skemman
Author: Jóhanna Sif Finnsdóttir 1992
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Education
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7019826311
