Hjartsláttur friðar og réttlætis: Áhrif mannréttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna á félagsráðgjöf
Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Félagsráðgjöf á rætur sínar að rekja til mannúðlegra og lýðræðislegra hugmynda. Félagsráðgjöf hefur frá upphafi lagt áherslu á að þróa mannlega hæfileika og viðhalda manlegri reisn. Jane Addams, friðarsinni og ein af helstu frumkvöðlum félagsráðgjafar, hefur lagt mikilvægan hugmyndafræðilegan grunn að félagsráðgjöf. Addams barðist fyrir félagslegu réttlæti og var í forystu kvenna sem vildu m.a. ná fram kosningarétti, voru í andstöðu við fyrstu heimsstyrjöldina og töluðu með aðgerðum í átt að heimsfriði. Hugmyndir og bækur Addams voru í takt við markmið Sameinuðu þjóðanna og Eleanor Roosevelt við gerð mannréttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna árið 1948, en um tuttugu félagsráðgjafar komu að gerð yfirlýsingarinnar sem tók um þrjú ár. Í yfirlýsingunni er kveðið á um mannréttindi og grundvallarfrelsi sem gera okkur kleift að þroska og nýta til fulls mannlega eiginleika okkar, gáfur, hæfileika og samvisku. Þau byggjast á auknum kröfum mannkynsins um líf þar sem meðfædd virðing og verðmæti hvers manns njóta virðingar og verndar. Handbók sem gefin var út af mannréttindamiðstöð SÞ, í samráði við Alþjóðafélag félagsráðgjafa (IFSW) og Samtök alþjóðlegra skóla í félagsráðgjöf (IASSW), og er ætluð félagsráðgjöfum, markaði mikilvæg tímamót í að gera mannréttindi að lykilhugsun innan félagsráðgjafar. Þessi alþjóðafélög gegna mikilvægu hlutverki innan félagsráðgjafar m.a við að setja alþjóða siðareglur og útbúa helstu staðla fyrir menntun og þjálfun félagsráðgjafa. Alþjóða siðareglur félagsráðgjafa gegna mikilvægu hlutverki við að setja grunn að vinnubrögðum sem hægt er að ætlast til af félagsráðgjöfum hvar sem þeir starfa. Innan félagsráðgjafar má sjá áhrif mannréttindayfirlýsingarnar og Jane Addams í fjölmörgum kenningum, sjónarhornum og vinnuaðferðum. Niðurstöður sýna að áhrifin birtast m.a í alþjóðlegum siðareglum félagsráðgjafa, krítískum kenningum, mannréttindasjónarmiði og félagslegu réttlætissjónarmiði sem öll gegna stóru hlutverki innan félagsráðgjafar. Ásamt því má segja að grunnur mannréttindayfirlýsingar SÞ þar sem kveðið er á um frelsi, réttlæti, frið ásamt bræðralagi tengist grunnhugmyndum Jane Addams að friðsælum heimi.
Source: Skemman
Author: Arndís María Karlsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: History
Field: Arts and Humanities
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7019914780
