Work

Íþróttagarpar framtíðarinnar : áhrif íhlutunar í matarumhverfi íþróttafélags á fæðuval og viðhorf foreldra og 10-18 ára iðkenda

Year: 2019
Type: dissertation
Study design: Clinical Trial
Abstract: Þátttaka í skipulögðu íþróttastarfi á Íslandi hefur aukist á seinni árum. Börn sem stunda íþróttir þurfa eins og aðrir fjölbreyttan og næringarríkan mat í nægu magni. Þættir sem hafa áhrif á fæðuval barna eru víða í íþróttaumhverfi. Markmið þessa verkefnis var að rannsaka fæðuvenjur barna á aldrinum 10-18 ára í kringum íþróttaæfingar og matarumhverfi íþróttamiðstöðva og matarumhverfi Ungmennafélagsins Aftureldingar (UMFA) ásamt því að skoða hvort íhlutun í matarumhverfinu geti haft áhrif á fæðuvenjur iðkenda og upplifun þeirra og foreldra af matarumhverfinu. Úttekt var gerð á úrvali veitingasölu íþróttamiðstöðvanna að Varmá og í Lágafelli sem er heimavöllur UMFA og á auglýsingum fyrir mat og drykk. Rýnihópar þjálfara og foreldra ræddu áhrifaþætti mataræðis iðkenda og hugsanlegar breytingar á matarumhverfi. Bæði fyrir og eftir íhlutun var spurningalisti lagður fyrir börn (n=66, haust 2018 og n=56, vor 2019) og foreldra (n=131, vor 2018 og n=125, vor 2019) sem laut að fæðuvali í kringum æfingar, fæðuframboði og auglýsingum innan íþróttamiðstöðvar. Niðurstöður sýndu ekki marktæka breytingu á fæðuvali þátttakenda eftir íhlutun. Þátttakendur borðuðu hollt eða frekar hollt í kringum æfingar og tóku helst nesti að heiman. Þá álitu þátttakendur úrval veitingasölu og ástand aðstöðu lélegt eða frekar lélegt, bæði fyrir og eftir íhlutun. Flestir þeirra vildu sjá enn frekari breytingar á matarumhverfi. Áframhald verður á næringarfræðslu fyrir iðkendur og foreldra þar sem framtakið mæltist vel fyrir. Þörf er á umfangsmeiri aðgerðum í nafni heilsueflingar svo breytingar á matarumhverfi geti borið marktækan árangur.
Source: Skemman
Author: Katrín Þóra Sigurbjörnsdóttir
Language: Icelandic
Field: Nursing
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7020084910
Cites: 85
Cited by:
Related to: 10