Year: 2020
Type: dissertation
Abstract: Kenningin um hrakval hefur spilað stórt hlutverk í hagfræðinni og víðar. Hrakval verður til vegna ósamhverfra upplýsinga milli aðila í viðskiptum og veldur velferðartapi fyrir samfélagið. Þegar ósamhverfar upplýsingar eiga sér stað á milli tryggingataka og tryggingafélags skapast hætta á því að þeir sem líklegastir eru til þess að kaupa tryggingar eru þeir sem á sama tíma eru líklegastir til þess að lenda í tjóni. Með hagstæðu vali er hins vegar átt við það þegar þeir einstaklingar sem eru ólíklegri til þess að lenda í tjóni eru líklegri til að kaupa sér tryggingar. Hér er leitast eftir að varpa ljósi á þessar tvær kenningar, fræðilegan uppruna þeirra, hvað þær eiga sameiginlegt og hver meginmunurinn á þeim er. Skoðaðar eru forsendur kenninganna og hvort þær standist á raunverulegum tryggingamörkuðum. Notast er við myndræna framsetningu á markaði þar sem hrakval á sér stað annars vegar og hagstætt val hins vegar til þess að einfalda skilning á því hverjar afleiðingar kenninganna eru. Þá er farið er yfir gagnrýni á kenningarnar út frá ólíkum sjónarhornum Fjallað er um rannsóknir sem gerðar hafa verið á hinum ýmsu tryggingamörkuðum þar sem kannað var hvort jákvætt samband væri að finna á milli tryggingaverndar og áhættu. Rannsóknir þessar sýna fram á ólíkar niðurstöður þar sem finna mátti merki um hrakval á ákveðnum mörkuðum en hagstætt val á öðrum.
Source: Skemman
Author: Kristjana Björk Steinarsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Economics and Econometrics
Domain: Social Sciences
Keywords: moral hazard, insurance market, risk aversion
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7020237191
