Work

Langtímameðferðarárangur barna með sértæka fælni : hvað hamlar meðferðarárangri? : áhrif kyns barns og kvíða foreldra

Year: 2018
Type: dissertation
Abstract: Sértæk fælni er ein algengasta kvíðaröskunin á meðal barna og unglinga og er með í kringum 10% algengi í almennu þýði. Rannsóknir hafa sýnt að 60-70% barna sem hljóta hugræna atferlismeðferð (HAM) svara meðferðinni. Þó er enn stór hluti barna sem svarar ekki meðferð (30-40%) og enn er lítið vitað um hvað það er sem hamlar meðferðarárangri. Þessi rannsókn felst í því að skoða hvort að kyn barns eða kvíði foreldra stuðli að verri langtímameðferðarárangri hjá 83 börnum (6-15 ára, 47% stúlkur) sem hafa hlotið gagnreynda sálfræðimeðferð við sértækri fælni. Rannsóknartilgátur voru annars vegar að kvíði foreldra hafi áhrif á langtímaárangur barna og hins vegar að drengir skili betri langtímaárangri en stúlkur. Sértæk fælni var metin með hálf-stöðluðu greiningarviðtali, svokölluðu Anxiety Disorders Interview Schedule (ADIS). Til að ná greiningarskilmerkjum fyrir sértæka fælni samkvæmt ADIS þarf að skora 4 eða hærra á klíniskum skala (CSR). Kvíði foreldra var mældur með spurningalistanum Symptom Checklist-90, sem er 90 spurninga sjálfsmatslisti til að mæla sálrænan vanda. Þátttakendum var slembiraðað í tvær mismunandi meðferðir, annars vegar meðferð í einum tíma (e. one session treatment; OST) og hins vegar námsstuðning (e. educational support treatment; EST). OST og EST voru eins í sniðinu að því undanskildu að hvorki var notast við berskjöldun né hugrænar áskoranir í EST. Eftirfylgni var gerð einni viku, sex mánuðum, einu ári og fjórum árum eftir meðferð. Fyrri rannsóknir hafa bent til þess að OST og EST hafi sambærilegan langtímaárangur og voru þær því skoðaðar saman. Aðhvarfsgreining var gerð fyrir hvern tímapunkt fyrir sig, þar sem könnuð voru áhrif kyns, áhrif kvíða móður og áhrif kvíða föður á langtímameðferðarárangur barns með sértæka fælni, að teknu tilliti til aldurs og mælinga á fyrri tímapunktum. Verulega dró úr alvarleika einkenna fælninnar, meðaltal alvarleika einkenna var 6,10 á CSR fyrir meðferð en fór niður í 1,65 að meðaltali við fjögurra ára eftirfylgni. Ekki reyndist heldur vera marktækur munur á langtímameðferðarárangri eftir kyni barns og hvorki kvíði móður né kvíði föður hefur áhrif á langtímameðferðarárangur barna með sértæka fælni. Niðurstöður rannsóknarinna sýna að meðferðarúrræðin skila árangri í meðhöndlun á sértækri fælni, óháð kyni og kvíða foreldris. Hafa þarf í huga við túlkun á niðurstöðum að annmarkar voru á rannsókninni, eins og lágur kvíði hjá foreldrum barnanna í rannsókninni. \n \nLykilhugtök: Kvíði, sértæk fælni, börn, langtímaárangur, HAM.
Source: Skemman
Authors: Helga Margrét Haraldsdóttir 1985, Thelma Rós Sigurðardóttir 1986, Jóhanna Ósk Kristinsdóttir 1993
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7020261664
Cites: 31
Cited by:
Related to: 9