Work

Krossbandslit kvenna í knattspyrnu: Helstu orsakir og forvarnaráætlanir

Year: 2025
Type: dissertation
Abstract: Krossbandaslit eru ein alvarlegustu meiðslin sem leikmenn geta orðið fyrir í knattspyrnu og því getur fylgt löng fjarvera frá íþróttinni og langvarandi endurhæfingarferli. Rannsóknir hafa sýnt fram á að konur séu líklegri til þess að slíta krossbönd miðað við karla, þá sérstaklega þær sem stunda hópíþróttir. Uppgangur kvenna í knattspyrnu hefur aukist sífellt síðustu ár en með auknum iðkendafjölda hefur meiðslatíðni einnig hækkað. Krossbandaslit kvenna í íþróttum er vaxandi vandamál með fáum rannsóknum á efninu. Forvarnaráætlanir hafa verið gerðar og notaðar sem fyrirbyggjandi þáttur gegn krossbandaslitum en þurfa leiðbeiningu þjálfara til að skila árangri. Markmið þessarar ritgerðar er að kanna helstu orsakir krossbandslita kvenna í knattspyrnu og einnig að skoða forvarnaráætlanir fyrir fyrirbyggjandi áhrif.
Source: Skemman
Author: Bjarki Þór Valdimarsson
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7020271327
Cites: 63
Cited by:
Related to: 10