Work

Kynjamunur í íslenska menntakerfinu í ljósi mannauðskenningarinnar og kenninga um kynjaða sjálfsmynd

Year: 2019
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Konur standa nú körlum framar á ýmsum stigum menntakerfisins, bæði á Íslandi og erlendis. Sú þróun hefur verið útskýrð með því að drengi skorti samskiptahæfileika (e. non-cognitive skills). Innan ramma mannauðskenningarinnar má líta á þennan skort samskiptahæfileika sem aukinn átakskostnað við menntunarfjárfestingar. Skortur samskiptahæfileika hjá drengjum hefur verið útskýrður með kenningum um kynjaða sjálfsmynd. Drengir stundi hegðun sem leyfir þeim að upplifa sig sem „hefðbundinn dreng“ og að sú hegðun samrýmist ekki dugnaði og samviskusemi í námi. \n\tMarkmið þessarar ritgerðar er að lýsa og bera saman námsframmistöðu kynjanna í grunnskóla, framhaldsskóla og háskóla hérlendis og kanna hverjar geta verið mögulegar ástæður fyrir mismunandi námsvali og frammistöðu. Einkunnadreifing samræmdra prófa í íslensku og stærðfræði í 4., 7. og 10. bekk í grunnskóla, fyrir árganga fædda 1995 og 2000, er skoðuð. Gerðar eru aðhvarfsgreiningar til að kanna hvernig kyn hefur áhrif á árangur einstaklinga í samræmdum prófum. Í framhaldi eru útskriftartölur á framhaldsskólastigi og háskólastigi skoðaðar eftir kynjum. \n\tNiðurstöður rannsóknarinnar eru á þann veg að konur standa sig almennt betur á samræmdum prófum í grunnskóla, sérstaklega í íslensku. Á framhaldsskólastigi eru kynjahlutföll brautskráðra tiltölulega jöfn, en stúlkur í meirihluta þeirra sem klára stúdentspróf. Forskot stúlkna í grunnskóla gæti valdið því að þær sæki fremur en drengir í bóknám á framhaldsskólastigi, átakskostnaður þeirra við bóknámið er ef til vill lægri. Konur sækja fremur í háskólanám en karlar og velja sér aðrar greinar í háskóla. Í staðinn ljúka mun fleiri karlar sinni menntun með starfsnámi. Í háskóla eru karlar tiltölulega fjölmennastir í greinum sem gefa hærri tekjur, meira starfsöryggi og fela í sér lausn afmarkaðra verkefna. Konur eru hins vegar í mest afgerandi meirihluta í greinum sem felast í umönnun og mannlegum samskiptum. Niðurstöðurnar eru í samræmi við erlendar rannsóknir, þ.e. að samviskusemi í námi stangist á við karlmennskuímynd drengja, sér í lagi í móðurmálsfögum og fögum þar sem samskiptafærni og umhyggja skipta meira máli.
Source: Skemman
Author: Gísli Gylfason
Language: Icelandic
Subfield: Gender Studies
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7020315131
Cites: 30
Cited by: 1
Related to: 10