Year: 2021
Type: dissertation
Abstract: Svæði á austanverðum Tröllaskaga var rannsakað sumarið 2019 og laus jarðlög kortlögð. Rannsóknarsvæðið samanstendur af þremur dölum, það eru Bægisárdalur, Lambárdalur og Húsárdalur, U-laga dalir með skálarjöklum í botni. Dalirnir einkennast af landmótun jökla, rennandi vatns og ofanflóða. Svæðið var kortlagt síðla sumars þegar mestur vetrarsnjór var farinn og unnið var kort yfir laus jarðlög. Kortið var útbúið út frá vettvangsathugunum, loftmyndum og hæðargögnum, og landformum dalanna og mótun þeirra er lýst á grundvelli þeirrar yfirborðskortlaginu. Á rannsóknarsvæðinu eru ummerki eftir hörfun skriðjökuls úr Bægisárdal í lok síðasta jökulskeiðs. Seinna á nútíma mynduðust skálajöklar í botnum og drögum dalanna og hafa þeir síðan þá mótað dalina. Rannsóknarsvæðið einkennist einnig af berghlaupum sem féllu eftir að skriðjöklar höfðu hörfaði úr dölunum. Munur er á milli berghlaupa eftir staðsetningu í dölunum og virðast berghlaupin hafa fallið út frá veikum lögum í bergstaflanum, þar sem súr millilög liggja á milli basaltlaga. Berghlaup í lambárdal eru stór en hlupu stutt og liggja í dalshlíðinni. Berghlaupin í Bægisárdal og við Húsárdal eru misstór en höfðu nóg rími og dreifðu úr sér eins og mögulega var hægt.
Source: Skemman
Author: Karl Stefánsson
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Atmospheric Science
Field: Earth and Planetary Sciences
Domain: Physical Sciences
Keywords: landforms, glacial landforms
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7020384790
