Year: 2019
Type: dissertation
Abstract: Fyrri rannsóknir á viðfangsefni ritgerðarinnar gefa svipaðar niðustöður. Þær gefa til kynna hversu alvarleg áhrif eineltis geta verið á líðan og hegðun barna og unglinga, ásamt því sýna flestar niðurstöður fram á mikilvægi góðra samskipta á meðal barna og unglinga við foreldra. Fyrri rannsóknir á áhrifum samfélagsmiðla á líðan og hegðun barna og unglinga gáfu hins vegar mismunandi niðurstöður. Það sem stóð þar upp úr er það að mikilvægt er að horfa til einstaklingsmunar þegar kemur að notkun samfélagsmiðla. Það sem vakti áhuga í kjölfar fyrri rannsókna var það hvernig þessir þættir hafa áhrif á hvernig börn og unglingar meta lífsánægju sína. Fylgibreytan sem notuð var við úrvinnslu gagna, frá niðurstöðum rannsóknar sem gerð var í Noregi á börnum og unglingum 2018, var Hvernig metur þú lífsánægju þína á kvarðanum 1-10? [1 er versta mögulega lífið, 10 er besta mögulega lífið]. Áður en unnið var með gögnin voru lagðar fyrir fimm rannsóknarspurningar, en leitast var við að svara þeim með því að gera krosstöflur, lýsandi tölfræði, t-próf og línulega aðhvarfsgreiningu. Í heildarlíkani sem fengið var með línulegri aðhvarfsgreiningu var skoðað hvernig aldur og kyn, það að einhver hafi komið fram við einstakling á særandi eða illgjarnann hátt, hvort einstaklingur eigi gott samband við foreldra, notkun samfélagsmiðla og hvort einstaklingur hafi skoðað efni tengt sjálfsvígi/um, hafi áhrif á hvernig einstaklingur metur lífsgæði sín á kvarðanum 1-10. Meðaltal þess hvernig fólk metur lífsgæði sín á kvarðanum 1 - 10 var neikvætt skekkt eða 7,78 með staðalfrávikið 1,65. Niðurstöður heildarlíkans voru marktækar p<0,001 miðað við 95% öryggismörk. Hægt er að staðfesta það að lífsánægja stúlkna er 0,53 lægri á lífsánægju kvarðanum en hjá strákum, en aldur sýnir ekki marktækan mun í lífsánægju einstaklinga. Notkun samfélagsmiðla hafði ekki þau áhrif að minnka lífsánægju eftir því sem notkun varð meiri. Marktækur munur var á því að ef komið hafði verið fram við einstakling á særandi eða illgjarnan hátt lækkaði lífsánægja einstaklinga um 0,66 á lífsánægju kvarðanum. Samband við foreldra er mikilvægt þegar kemur að því að leita eftir aðstoð og sýndu niðurstöður marktækan mun ef miðað var við 90% öryggismörk, en þeir sem leita frekar til foreldra skora 0,51 hærra á lífsánægju kvarða en þeir sem leita síður til foreldra. Lífsánægja, samfélagsmiðlar, komið verið illa fram við, samband við foreldra.
Source: Skemman
Authors: Alda María Norðfjörð 1993-, Ása Hrund Viðarsdóttir 1994-, Guðbjörg Þórarinsdóttir 1993-
Institution: University of Akureyri
Language: Icelandic
Subfield: Sociology and Political Science
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7020644495
