Work

„Mér finnst hreyfing lífsnauðsynleg“ Virkni og áhugahvöt kvenna 65-75 ára til hreyfingar

Year: 2017
Type: dissertation
Abstract: Tilgangur: Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna viðhorf kvenna á aldrinum 65-75 ára til hreyfingar ásamt því að skoða hvort tengsl væru á milli virkni í æsku t.d. í íþróttaiðkun og virkni í hreyfingu á efri árum. Einnig var skoðað hvað það er sem hvetur þær til að stunda reglulega hreyfingu. \nAðferð: Gögnum í rannsókninni var aflað með eigindlegri rannsóknaraðferð á vordögum 2017. Tekin voru fimm opin viðtöl við konur á aldrinum 65-75 ára. Viðtölin fóru fram á heimilum viðmælenda með beinum orðaskiptum rannsakanda og viðmælenda. \nNiðurstöður: Niðurstöður leiddu í ljós að viðmælendurnir höfðu almennt jákvæða upplifun og var viðhorf þeirra til hreyfingar jákvætt. Megin hvatinn til að stunda hreyfingu var að viðhalda andlegri- og líkamlegri heilsu ásamt því að þær töluðu um að falleg náttúra og góður félagsskapur skipti þær máli en margar þeirra stunduðu göngutúra, ýmist einar eða í hóp. Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu einnig að tengsl voru á milli íþróttaiðkunar í æsku og ástundun hreyfingar hjá viðmælendum.
Source: Skemman
Author: Júlíana Hálfdánardóttir
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7020711973
Cites: 23
Cited by:
Related to: 10