Work

Málfærni eldri leikskólabarna (MELB): Athugun á tengslum við Málfærni ungra barna (MUB) og könnun á inntaksréttmæti

Year: 2020
Type: dissertation
Abstract: Inngangur: Stöðluð málþroskapróf eru próf sem unnin eru út frá niðurstöðum rannsókna á börnum með dæmigerðan málþroska og er ætlað að afla upplýsinga um málþroska barna út frá helstu þáttum tungumálsins. Mikill skortur er á stöðluðum prófum sem meta málþroska barna á aldrinum fjögurra til sex ára hér á landi og byggja á rannsóknum á máltöku íslenskra barna. Málþroskaprófinu Málfærni eldri leikskólabarna (MELB) er ætlað að fylla í það skarð. Markmið rannsóknar sem hér verður lýst er tvíþætt. Annars vegar að kanna tengsl málþroskaprófsins MELB við sambærilegt málþroskapróf, Málfærni ungra barna (MUB), og hins vegar að kanna inntaksréttmæti prófsins. \nAðferð: Í fyrri hluta rannsóknar voru málþroskaprófin MELB og MUB lögð fyrir 12 þátttakendur úr fjórum leikskólum á höfuðborgarsvæðinu. Börnin voru á aldursbilinu 4;0:0-4;0:30 og uppfylltu skilyrði til þátttöku, þ.e. voru eintyngd með íslensku að móðurmáli, heyrn innan eðlilegra marka og engin greind þroskafrávik. Reiknuð var dreifing heildarstigafjölda hjá þátttakendum á báðum prófum ásamt fylgni á milli prófþátta, prófhluta og heildarstigafjölda. Seinni hluti rannsóknar snýr að inntaksréttmæti MELB prófsins. Úrtak atriða var tekið úr atriðasafni prófsins og tíu talmeinafræðingar fengnir til að leggja mat sitt á hversu vel eða illa, á fjögurra punkta Likert kvarða, þeir teldu atriði prófa annars vegar málskilning og hins vegar máltjáningu. \nNiðurstöður: Helstu niðurstöður á tengslum málþroskaprófanna tveggja benda til þess að fylgni á milli MELB og MUB sé ásættanleg. Innbyrðis mælast prófhlutarnir, Málskilningur og Máltjáning, á báðum prófum marktækir miðað við p-gildi < 0,05 sem telst ásættanlegt. Fylgni heildarstigafjölda beggja prófanna mælist mjög sterk eða 0,83 og telst hún marktæk miðað við p-gildi < 0,01. Helstu niðurstöður á inntaksréttmæti MELB sýna að atriði á prófhlutanum Málskilningur fá matið 3,6 á kvarða sem liggur frá einum upp í fjóra og atriði á Máltjáningu matið 3,45. Niðurstöður fyrir heildarmat á því hve vel prófatriði MELB henta til að meta málskilning og máltjáningu er 3,53. \nUmræða: Heildarniðurstaða á fylgni MELB og MUB mælist marktæk og telst ásættanleg. Það gefur vísbendingar um að réttmæti málþroskaprófsins MELB sé sterkt og að túlkun á niðurstöðum prófsins sé fullnægjandi og viðeigandi. Nauðsynlegt er þó að kanna frekar tengsl MELB og MUB með stærra úrtaki þátttakenda til að styðja þessar niðurstöður. Heildarniðurstöður á mati á inntaksréttmæti MELB teljast einnig ásættanlegar og benda til að inntaksréttmæti prófsins sé sterkt og að atriði prófsins henti almennt vel til að leggja mat á hugsmíðarnar sem prófþáttunum er ætlað að meta. Þá gefa þær til kynna að inntak prófsins þjóni tilgangi þess sem er að meta málþroska barna á aldrinum fjögurra til sex ára.
Source: Skemman
Author: Stella Reynisdóttir
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7020759306
Cites: 40
Cited by: 2
Related to: 10