Meðgöngusykursýki á Íslandi. Áhrif á meðgöngu, móður og barn
Year: 2016
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Inngangur: \nTíðni meðgöngusykursýki (MGS) fer hratt vaxandi í hinum vestræna heimi og greinist hjá 3-14% þungaðra kvenna. Rannsóknir sýna að hjá konum með MGS er líklegra að fæðing sé framkölluð og að fæðing verði með keisaraskurði. Auk þess er algengara að börn þeirra fái fylgikvilla á borð við axlaklemmu, fósturköfnun, nýburagulu og blóðsykurfall. Markmið rannsóknarinnar er að kanna tíðni MGS og fylgikvilla móður og barna þeirra kvenna sem fengu MGS á Íslandi á árunum 2009-2010. \n \nEfni og aðferðir: \nRannsóknin náði til allra kvenna sem greindust með meðgöngusykursýki og fæddu einbura á Íslandi á tímabilinu 1. janúar 2009 til 31. desember 2010. Fyrir hverja konu sem greindist með meðgöngusykursýki voru fundin tvö viðmið í viðmiðahóp. Voru hóparnir paraðir saman eftir fæðingardegi barns (+/- 14 dagar), meðgöngulengd (+/- 7 dagar), líkamsþyngarstuðli (LÞS) móður við upphaf meðgöngu, aldri móður (+/- 5 ár), kyni barns og hvort móðir var frumbyrja eða fjölbyrja. \nSkráður var aldur móður og kynþáttur, líkamsþyngarstuðull við fyrstu komu í mæðravernd, meðgöngulengd og fæðingarþyngd nýburans. Einnig voru skráðir fylgikvillar á meðgöngu, fæðingarmáti og fylgikvillar í fæðingu, sem og fylgikvillar nýburans. Fyrir konur í tilfellahópi voru skráðar upplýsingar um sykurþolprófið sem leiddi til greiningar MGS og meðferð á meðgöngu. Lýsandi tölfræði var notuð til að bera saman hópana og tölfræðileg marktækni miðuð við p<0,05. \n \nNiðurstöður: \nMeðgöngusykursýki greindist á 381 meðgöngu sem jafngildir 4% allra einburafæðinga á Íslandi. Konur sem fengu MGS voru þyngri en konur í viðmiðahóp (LÞS 30,6±6,9 samanborið við 28,4±5,3; p<0,01). Allar konurnar fengu blóðsykurmæli, næringarráðgjöf og leiðbeiningar um æskilega hreyfingu. Til viðbótar fengu 140 konur (37%) metformin og/eða insúlínmeðferð. Konur með MGS voru líklegri til að fá meðgönguháþrýsting (11,2% og 6,8%; p=0,01) en ekki var marktækur munur á tíðni meðgöngueitrunar. Framköllun fæðingar var algengari hjá konum með MGS (46,7% og 24%; p<0,01) og einnig fæðing með keisaraskurði (31,8% á móti 20,1%; p<0,01), bæði val- (15,2% og 8,8%; p<0,01) og bráðaaðgerðir (16,5% og 11,3%; p=0,02). Framköllun fæðingar jók ekki tíðni bráðakeisaraskurða í hvorugum hópnum. Konur með MGS fæddu oftar þungbura (12,9% og 5,5%; p<0,01) og börn þeirra þurftu oftar innlögn á Vökudeild (21% og 15,8%; p=0,03), ásamt því að þau fengu oftar blóðsykurfall eftir fæðingu (18,6% og 3,3%; p<0,01). Ekki var marktækur munur á tíðni fyrirburafæðinga, andvana fæðinga eða alvarlegra fæðingaráverka á milli hópanna. \n \nÁlyktanir: \nMGS greindist á 4% meðganga á Íslandi. Stór hluti (37%) þurfti lyfjameðferð með insúlíni og/eða metformin á meðgöngu. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til að mæðravernd kvenna með MGS sé góð hérlendis enda ekki aukin tíðni meðgöngueitrunar hjá þeim. Framköllun fæðingar og fæðing með keisaraskurði er algengari hjá konum með MGS, þær eru líklegri til að eignast þungbura og börn þeirra eru líklegri til að fá blóðsykurfall eftir fæðingu. Niðurstöðurnar má nota við mæðravernd kvenna sem greinast með MGS og þannig mögulega draga úr fylgikvillum móður og barns.
Source: Skemman
Author: Ómar Sigurvin Gunnarsson 1984
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7020802249
