Year: 2024
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Verkefnið fjallar um mikilvægi hreyfingar fyrir andlega og líffræðilega heilsu einstaklinga, þá sérstaklega þeirra sem glíma við fjölþættan vanda og hvaða áhrif hreyfing hefur á þá sem glíma við þunglyndi og/eða kvíðaraskanir. Verkefnið var unnið í samvinnu við Klettabæ þar sem deildarstjórar tóku þátt í rannsókn á afstöðu þjónustunotenda og starfsmanna Klettabæjar á hreyfingu og hvernig henni væri háttað nú til dags. Hreyfing getur hjálpað einstaklingum að líða betur og getur aukið sjálfstraust einstaklinga en þjónustunotendur Klettabæjar glíma margir við geðsjúkdóma auk þess að þar ríkir oft mikil kyrrseta. Aukið umtal um mikilvægi hreyfingar hjá Klettabæ, og öðrum stofnunum, gæti leitt til þess að áherslubreytingar verði gerðar, eða þær áherslur sem fyrir voru verða endurnýjaðar, með þeim tilgangi að auka lífsgæði þeirra sem nýta sér þjónustuna. Í þarfagreiningu sem framkvæmd var í upphafi verkefnis tóku alls 19 deildarstjórar þátt og voru gögnin unnin upp úr henni auk samanburðar við fræðilegar greinar um hreyfingu, geðheilbrigði, hvatningu og kyrrsetu.
Source: Skemman
Author: Sævar Breki Einarsson
Institutions: Reykjavík University, University of Iceland
Language: Icelandic
Topic: Physical Activity and Health
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7020906682
