Work

Millikynslóðaflutningur: Tengslamyndun foreldra og ungbarns. Nálganir í vinnu með foreldrum til að efla tengsl við barn

Year: 2021
Type: dissertation
Abstract: Fyrstu mánuðir í lífi ungbarna þegar þau eru fullkomlega ósjálfsbjarga þurfa þau að treysta alfarið á aðra til að veita þeim öryggi og mæta þeirra þörfum. Þeir aðilar sem gegna því hlutverki eru oftast foreldrar/umönnunaraðilar. Rannsóknir og fyrrum þekking á tengslamyndum hafa sýnt fram á að frumtengsl barns við umönnunaraðila á fyrstu árum ævinar getur haft áhrif á hvernig barnið mun tengjast öðrum á fullorðinsárum. \nMarkmið þessarar ritgerðar er að skoða mismunandi gerðir tengsla á milli foreldra og ungbarna, hvaða aðstoð er í boði fyrir foreldra sem ná ekki að tengjast barninu sínu og hvernig þekking félagsráðgjafa getur nýst vel í vinnu með foreldrum og ungbörnum. Helstu niðurstöður ritgerðarinnar eru að reynsla foreldra úr eigin bernsku virðist hafa áhrif á hvers konar tengslamynstur verður ríkjandi á milli þess og eigin barns. Einnig að notast ætti við snemmtæka íhlutun í vinnu með foreldrum og ungbörnum til að koma í veg fyrir að barn glími tengslaröskun á fullorðinsárum. Gerð er grein fyrir þeim margvíslegum nálgunum sem hægt er að beita í vinnu með foreldrum sem stuðla að því að efla tengsl þeirra við barnið sitt.
Source: Skemman
Language: Icelandic
Subfield: Demography
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7020922814
Cites: 51
Cited by:
Related to: 10