Námserfiðleikar og skuldbinding til náms og skóla: Tengsl við trú á eigin getu í námi og þörf fyrir ráðgjöf í framhaldsskóla.
Year: 2024
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Markmið þessarar megindlegu rannsóknar var að kanna tengsl námserfiðleika í grunnskóla og skuldbindingar framhaldsskólanemenda við trú þeirra á eigin getu í námi og þörf þeirra fyrir ráðgjöf. Skuldbinding var í þessari rannsókn metin með tilliti til samsömunar við skóla og félagslegrar og námslegrar skuldbindingar í framhaldsskóla. Þátttakendur í rannsókninni voru 1325 nemendur á 17. og 18. aldursári úr öllum framhaldsskólum landsins. Niðurstöður fjölbreytuaðhvarfsgreininga sýndu að námserfiðleikar í grunnskóla spáðu fyrir um trú framhaldsskólanemenda á eigin getu í námi. Því víðtækari sem erfiðleikarnir voru því minni trú höfðu þeir á eigin getu. Niðurstöðurnar sýndu einnig að námserfiðleikar spáðu fyrir um þörf framhaldsskólanemenda fyrir ráðgjöf. Því víðtækari sem erfiðleikarnir voru því meiri þörf höfðu þeir fyrir ráðgjöf. Þessar niðurstöður komu fram að teknu tilliti til kyns, menntunar foreldra, fyrri námsárangurs og skuldbindingar til náms og skóla. Einnig kom fram að námsleg skuldbinding spáði fyrir um trú framhaldsskólanemenda á eigin getu í námi og þörf þeirra fyrir ráðgjöf. Því skuldbundnari sem framhaldsskólanemendur voru náminu því meiri trú höfðu þeir á eigin getu og því minni þörf höfðu þeir fyrir ráðgjöf. Þessar niðurstöður komu fram að teknu tilliti til kyns, menntunar foreldra, fyrri námsárangurs, samsömunar þeirra við skóla, félagslegrar skuldbindingar og námserfiðleika í grunnskóla. Vonast er til að niðurstöður rannsóknarinnar nýtist náms- og starfsráðgjöfum og öðru fagfólki í skólum til að veita nemendum með námserfiðleika þann stuðning og ráðgjöf sem þeir þurfa á að halda og séu meðvitaðir um mikilvægi þess að nemendur sem glíma við námserfiðleika hafi trú á eigin getu í námi
Source: Skemman
Author: Lára Halldóra Eiríksdóttir
Language: Icelandic
Subfield: Developmental and Educational Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7021021062
