Year: 2015
Type: dissertation
Abstract: Á Íslandi er munur á því hvort innflytjandi kemur frá landi sem tilheyrir EES samningunum um frjálst flæði eða hvort hann komi frá landi utan EES. Þeir einstaklingar sem koma frá löndum utan EES hafa langtum minni rétt og þurfa því oft að leggja mikið á sig til þess að komast til landsins og fá fastan búseturétt á landinu. Þetta eru líka þeir einstaklingar sem sækjast frekar eftir því að fá íslenskan ríkisborgararétt vegna þeirra takmörkuðu aðildar sem dvalarleyfi á Íslandi gefur þeim. \nRannsókn þessi fjallar um afstöðu innflytjenda frá löndum utan EES til ferilsins um íslenskan ríkisborgararétt, samskiptin við stofnanir og íslenskuprófið. Tekin voru viðtöl við átta innflytjendur og fjóra einstaklinga sem teljast sem fagfólk um umsóknarferlið. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru að viðmælendur mínir telja umsóknarferlið flókið og dýrt, það megi mikið bæta úr þeim þáttum ferilsins. Meginástæða fyrir því að viðmælendur mínir sækjast eftir ríkisborgarétti er vegna persónulegrar tengingar við landið, þeir hafa fest rætur. Viðmælendum mínum, af erlendum uppruna, finnst mikilvægt að íslenskuprófið verði áfram hluti af ferlinu. Að þeirra mati er tungumálið mikilvægur partur af íslenska samfélaginu og þeir vilja jafnframt bæta við prófið að umsækjendur um íslenskan ríkisborgarétt þurfi að hafa lámarkskunnáttu í íslenskri menningu og sögu.
Source: Skemman
Author: Karólína Helga Símonardóttir 1984
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Sociology and Political Science
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7021193939
