Rannsóknir í félagsvísindum XI. Stjórnmálafræðideild. Ritstýrðar greinar
Year: 2010
Type: book
Abstract: Ómarsdóttir, aðjúnkt við Stjórnmálafræðideild HÍ Vilborg Jóhannsdóttir, lektor Menntavísindasviðs við HÍ Formáli Þjóðarspegill, ráðstefna um rannsóknir í félagsvísindum, er nú haldinn í ellefta sinn og er í þessum bókum frá stjórnmálafræðideild að finna fimm ritrýndar greinar og þrettán ritstýrðar greinar á rannsóknasviðum deildarinnar, en þau eru stjórnmálafræði, opinber stjórnsýsla, kynjafræði og alþjóðastjórnmál.Þjóðarspegillinn bauð í ár í fyrsta sinn upp á ritrýni og nýttu nokkrir fræðimenn sér möguleika á að birta verk sín í þessum hluta.Enn fleiri birta greinar í ritstýrðum hluta, þar á meðal eru nokkrar greinar sem byggja á meistararitgerðum höfunda og doktorsverkefnum.Ég þakka höfundum gott samstarf og sérstakar þakkir fá allir ritrýnendurnir sem lögðu sitt af mörkum til að þetta yrði að veruleika, en tveir ónafngreindir ritrýnar fóru yfir hverja grein sem send var inn í ritrýndan hluta.Eins og áður er markmið Þjóðarspegilsins að gefa félagsvísindafólki tækifæri til að kynna rannsóknir sínar og skapa almenningi aðgang að þeim.Í ár eru greinarnar eingöngu gefnar út í rafrænu formi og verða aðgengilegar í Gegni og á Skemmunni, þar sem vonir standa til að þau nýtist almenningi enn betur en áður.Erindi voru valin á ráðstefnuna og til birtingar á grundvelli útdráttar, sem höfundar sendu inn.Með nýju fyrirkomulagi er einnig tekin upp sú nýbreytni að tengja erindi saman þvert á deildir.Í stjórnmálafræðihluta ritsins er því að finna greinar sem voru kynntar í málstofum á ólíkum sviðum, eða í málstofum um öryggismál, stjórnmál og samfélag, kynjafræði, fötlunarfræði, heilsu, efnahagshrun og afleiðingar, umhverfi og auðlindir, fjölmiðlarannsóknir, og stjórnskipun Íslands.Höfundar eru m.a.starfsfólk og nemendur stjórnmálafræðideildar, og sérstaklega ánægjulegt er að doktorsnemar og prófessorar birta greinar saman um efni tengd rannsóknum doktorsnema.Ráðstefna af þessu umfangi krefst mikillar undirbúningsvinnu.
Source: Skemman
Author: Silja Bára Ómarsdóttir, ritstj.
Language: Icelandic
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7024257662
