Work

Samanburður á samfélagsstefnum helstu viðskiptabanka Íslands

Year: 2020
Type: dissertation
Abstract: Samfélagsábyrgð hefur öðlast aukið mikilvægi síðustu ár vegna vitundarvakningar þeirra áhrifa sem fyrirtæki hafa á umhverfið og hefur því mikilvægi samfélagsábyrgðar farið að vega þyngra hjá fyrirtækjum. Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna hafa nýst fyrirtækjum sem leiðarvísir við innleiðingu á samfélagsstefnu og hafa þrír stærstu viðskiptabankar Íslands tileinkað sér heimsmarkmið sem heyra best undir starfsemi þeirra. Sköpun og hámörkun sameiginlegra verðmæta samfélagsins eiga sér stað þegar bankar eru samfélagslega ábyrgir og er því ávinningur við innleiðingu samfélagsábyrgðar mikill. \nMarkmið þessa verkefnis er að bera saman samfélagsstefnur þriggja stærstu viðskiptabanka Íslands og reyna að meta að hversu miklu leyti bankarnir styðjist við samfélagsstefnur sínar við úrvinnslu lánaumsókna þegar áföll verða. Notkun fyrirliggjandi heimilda og gagna bankanna, meðal annars árs- og sjálfbærniskýrslur, voru nýttar til frekari greiningar. Rannsókn þessi byggir á eigindlegri nálgun óstaðlaðra viðtala við fulltrúa helstu viðskiptabanka Íslands ásamt efnisgreiningu. \nHelstu niðurstöður rannsókarninnar er að nálgun áhersluþátta sem henta starfsemi hvers banka sé helsti munurinn á samfélagsstefnum þeirra. Notkun UFS mælikvarða er meðal helstu áhersluþátta bankanna og telja bankarnir að heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna séu ekki fullnægjandi til að byggja samfélagsskýrslu. Rannsóknin sýndi að samkeppnislög ættu ekki við á sviði samfélagsábyrgðar þar sem það ættu ekki að ríkja leyndarmál er varða málefnið. \n \nEfnisorð: Samfélagsábyrgð, sjálfbærni, heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna, viðskiptabankar, UFS
Source: Skemman
Authors: Aron Kristinn Jónasson, Lára Isabelle Sigríður Portal
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7024263525
Cites: 24
Cited by:
Related to: 10