Year: 2014
Type: dissertation
Abstract: Ritgerðin fjallar um reynslu kennara af sjálfsvígsforvörnum í framhaldsskólum og viðhorf þeirra til slíkra forvarna. Aðaláhersla var lögð á að skoða þá þætti sem einkum skipta máli varðandi sjálfsvígshegðun ungmenna og þá sérstaklega hvert sé hlutverk framhaldsskóla í því að koma auga á eða greina slíka hegðun. \nMarkmiðið með þessari rannsókn var að skoða þá þætti sem helst skipta máli í forvörnum fyrir sjálfsvígshegðun ungmenna og þá sérstaklega hvert hlutverk framhaldsskóla sé í þeim forvörnum. Viðmælendur voru sex framhaldsskólakennarar í jafnmörgum skólum. Allir eru þeir félagsgreinakennarar með töluverða kennslureynslu. Tekin voru við þá óstöðluð viðtöl vorið 2013 og unnið úr þeim með hliðsjón af fyrirbæralegum vinnuaðferðum. \nHelstu niðurstöður rannsóknarinnar voru þær að kennarar eru jákvæðir fyrir sjálfsvígsforvörnum í skólum. Þeir þekkja nokkuð vel til helstu áhættuþátta sjálfsvígshegðunar, sem eru lyndisraskanir og áfengis- og vímefnaneysla. Viðmælendur eru engu að síður óöruggir í hlutverki sínu sem sjálfsvígsforvarnaraðilar og finnst þá skorta fræðslu og þjálfun í sjálfsvígsfræðum til að vinna með nemendur í sjálfsvígshættu. Einnig kom fram að kennarar bera mikla umhyggju fyrir nemendum sínum og telja uppbyggileg samskipti við þá öfluga leið til að vernda nemendur fyrir skaðlegum þáttum eins og sjálfsvígshegðun. \nKennararnir gagnrýna að innan skólanna sé ekki meiri áhersla lögð á sjálfsvígsforvarnir, þar sem mörg ungmenni glími við einhverskonar geðvandamál. Þeir telja að árangursríkast væri að efla umsjónarkerfi og náms- og starfsráðgjöf í skólum til að mæta nemendum sem sýna sjálfsvígshegðun. Að fá fleiri sérfræðinga (t.d. sálfræðinga) inn í skólana, til að veita ráðgjöf í forvarnarstarfinu, telja kennararnir ennfremu vænlega leið til úrbóta.
Source: Skemman
Author: Gunnar Árnason 1968
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Clinical Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7024352985
