Work

Skapandi gervigreind og þekkingarstjórnun: Áhrif skapandi gervigreindar á þekkingarstjórnun leyndrar þekkingar

Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Framlag þessarar ritgerðar er að tengja saman þekkingarstjórnun og skapandi gervigreind. Sýna fram á að með tilkomu skapandi gervigreindar opnast fyrir nýja möguleika við að draga fram leynda þekkingu sem að skipulagsheildir geta nýtt sér. En sú tegund þekkingar getur ýtt undir nýsköpun og stuðlað að samkeppnisforskoti fyrirtækja. \nLeitast var eftir því að svara rannsóknarspurningunni; hver eru áhrif skapandi gervigreindar á þekkingarstjórnun leyndrar þekkingar? Helstu niðurstöður sýna fram á að skapandi gervigreind komi til með að gjörbreyta landslagi þekkingarstjórnunar. Margt bendir til þess að með frekari þróun skapandi gervigreindar komi slík kerfi til með að ná að innlima sífellt stærri hluta af leyndri þekkingu, sem fyrri þekkingarstjórnunarkerfi gátu ekki. Er það von höfundar að vekja lesanda til umhugsunar um gervigreind, skapandi gervigreind og margvíslega nýtingu þessarar tækni í ferlum fyrirtækja og þekkingarstjórnunar.
Source: Skemman
Author: Tanja Ýr Theodórsdóttir
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7024445251
Cites: 42
Cited by:
Related to: 10