Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Þetta 40 eininga meistaraverkefni skiptist í tvo hluta; annars vegar meistararitgerð og hins vegar heimildarmynd sem ber nafnið Samkenndarskápar sem er hluti af framsetningu rannsóknarinnar. Viðfangsefni rannsóknarinnar eru svokallaðir Frískápar sem eru deili-ísskápar sem eru staðsettir utandyra í almannarými en þangað getur hver sem er komið með mat til þess að setja í ísskápana og sömuleiðis sótt sér þann mat sem það vill. Skáparnir eru hugsaðir undir þau matvæli sem eru umfram neyslu manns sjálfs, eða ósöluhæf, en engu að síður neysluhæfur matur frá matvöruverslunum og fyrirtækjum. Megin markmið þeirra er að draga úr matarsóun og byggja upp sterkara samfélag í kringum það að deila mat. \nVið nánari athugun virðist búa meira að baki því að gefa og þiggja mat úr Frískáp en einungis að draga úr matarsóun. Þessar athafnir eru nátengdar samkennd og tilfinningum. Rannsóknin miðar að því að rannsaka tilfinningalega upplifun þeirra sem gefa reglulega í Frískápana og skoða hvaða merkingu fólk leggur í þá iðkun. Auk þess er skoðað á hvaða hátt fólk myndar tengsl í gegnum Frískápana og hvað drífur fólk áfram í að setja mat í þá. Unnið er með hugtökin „commensality“ sem vísar í þá athöfn að borða saman, heimili og almannarými, ný-efnishyggja (e. new materialism) og tilfinningalegar athafnir (e. emotional practices). Lögð er sérstök áhersla á að skoða Frískápinn sem efnishlut og áhrifamátt hans varðandi merkingasköpun og tengslamyndun. \nMarkmið heimildarmyndarinnar Samkenndarskápar er að vekja athygli á fyrirbærinu Frískápur, tilgangi og stöðu hans í almannarými. Myndin þjónar því hlutverki að búa til stað fyrir áhorfendur til að tengjast og finna til samkenndar við þátttakendur rannsóknarinnar. Þessi meistararitgerð og heimildarmynd opna í sameiningu hurðir Frískápa og rýna þar í tilfinningar, athafnir og efnismenningu skápanna sjálfra.
Source: Skemman
Author: Rakel Jónsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Anthropology
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7024476822
