Work

Reynsla náms- og starfsráðgjafa af brotthvarfi úr framhaldsskólum

Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Megintilgangur rannsóknarinnar var að fá innsýn í reynslu náms- og starfsráðgjafa í framhaldsskólum á þeirri þjónustu sem þeir veita nemendum í brotthvarfshættu. Áhersla var lögð á hvers konar úrræði þeir styðjast helst við til að bregðast við brotthvarfshættu nemenda og hvort eitthverju sé ábótavant til þess að hægt sé að mæta þörfum þessa hóps á skilvirkari hátt. Þá var einnig ætlunin að fá sýn á hvernig samvinnu væri háttað við meðlimi innan stoðþjónustunnar, kennara, skólastjórnendur og foreldra ungmenna í brotthvarfshættu. Tekin voru sjö hálf-stöðluð viðtöl við náms- og starfsráðgjafa sem starfa í framhaldsskólum á höfuðborgarsvæðinu. Meginniðurstöður leiddu í ljós að ráðgjafarnir nota helst úrræði á borð við einstaklingsráðgjöf og hópráðgjöf til að styðja við nemendur í brotthvarfshættu. Miðannarmat reynist einnig gefa mikilvægar vísbendingar um hvort grípa þurfi inn í skólagöngu nemenda. Ennfremur skipti máli í brotthvarfsaðgerðum að sú stoðþjónusta sem að nemendur hafi aðgengi að einkennist af góðu samstarfi meðal náms- og starfsráðgjafa, kennara, sálfræðings og hjúkrunarfræðings. Niðurstöður sýndu að ráðgjafarnir væru í góðu samstarfi við foreldra, kennara, stjórnendur og aðra meðlimi stoðþjónustunnar. Þá telji ráðgjafarnir lykilhlutverk þeirra vera það að styðja við líðan og nám nemenda með utanumhaldi og sveigjanleika í námi. Ráðgjafarnir töldu aukna þörf fyrir betri samþættingu milli grunn- og framhaldsskóla svo hægt væri að mæta þörfum nemenda með fullnægjandi hætti. Vonast er til að niðurstöðurnar muni gagnast stjórnvöldum, stjórnendum og náms- og starfsráðgjöfum til að bæta það góða starf sem nú þegar er unnið gegn brotthvarfi í framhaldsskólum. \n
Source: Skemman
Author: Guðný Eik Arnardóttir
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7024500680
Cites: 84
Cited by:
Related to: 10