Work

Samvinna eða samstarf ritvera og háskólabókasafna: Upplifun starfsfólks

Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Þessi ritgerð er lokaverkefni til MIS-gráðu í upplýsingafræði við Háskóla Íslands. Ritgerðin byggir á eigindlegri rannsókn þar sem tekin voru viðtöl við starfsfólk ritvera og háskólabókasafna. Markmið rannsóknarinnar er að draga fram hvernig starfsfólk ritvera og háskólabókasafna upplifir samvinnu eða samstarf þessara tveggja eininga. \nÞað má draga þá ályktun af niðurstöðunum að almennt séð hafi starfsfólk góða reynsluaf samvinnu eða samstarfi ritvera og háskólabókasafna og víða mjög góða reynslu. Sumsstaðar er þó eitthvað sem þátttakendur upplifðu að mætti fara betur. \nNiðurstöðurnar benda til að það sé bæði margt líkt og margt ólíkt með samvinnu og samstarfi ritvera og bókasafna. Það var ólíkt hvort viðmælendur töldu að um samvinnu eða samstarf væri að ræða í sínu tilfelli. Samvinnan eða samstarfið var einnig ólíkt í eðli \nsínu þó einhverjir sameiginlegir þættir væru til staðar. Það sem flestir viðmælendur áttu helst sameiginlegt var að mannlegi þátturinn skipti miklu máli í hvort samvinnan eða samstarfið gengi vel eða ekki eins vel. Það virðist skipta miklu máli að fólkið sem ætlar að vinna saman geti náð góðum tengslum og unnið saman á jafningjagrundvelli. Niðurstöðurnar benda einnig til þess að það sem sé ólíkt sé meðal annars stærð ritvera \nog bókasafna, fjármögnun og staða þeirra á skipuriti háskólans sem þau tilheyra. Það virðist einnig vera ólíkt hversu nálæg ritver og bókasöfn eru hvort öðru innan háskólabygginga. Mannlegi þátturinn skiptir því miklu máli þegar kemur að samvinnu eða samstarfi ritvera og háskólabókasafna. Það virðist einnig skipta máli að starfsfólk ritvera \nog bókasafna fái góðan stuðning frá sínum yfirboðurum.
Source: Skemman
Author: Anna María Eiríksdóttir
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7024541136
Cites: 60
Cited by:
Related to: 10