Work

Skólafélagsráðgjöf við áfengis- og vímuefnaneyslu unglinga í grunnskóla

Year: 2013
Type: dissertation
Abstract: Ritgerð þessi fjallar um áhrif og umfang áfengis- og vímuefnaneyslu unglinga í grunnskólum hérlendis. Meginviðfangsefni hennar er að gera grein fyrir þeim þáttum sem talist geta áhættuþættir eða styrkjandi þættir til varnar því að unglingar leiðist út í áfengis- og vímuefnaneyslu á grunnskólaaldri. Leitast verður við að svara eftirfarandi rannsóknarspurningum: Er þörf á félagsráðgjafa innan grunnskóla á sviði áfengis- og vímuefnamála? Að hvaða leyti eru félagsráðgjafar vel til þess fallnir að starfa innan veggja grunnskóla í tilfellum áfengis- og vímuefnaneyslu? \nNiðurstöður ritgerðarinnar gefa til kynna að þörf fyrir félagsráðgjafa í grunnskólum landsins er til staðar og að þeir séu vel til verksins fallnir vegna menntunar sinnar og hæfni til samstarfs við ýmist foreldra, starfsmenn skóla sem og starfsmenn annarra opinberra stofnana. Börn og unglingar á grunnskólaaldri þurfa aðhald, reglusemi og náin tengsl við foreldra og opinberar stofnanir svo sem grunnskóla. Félagsráðgjafi í grunnskólum gæti aðstoðað við slík tengsl og verið milligönguliður og talsmaður barna í samskiptum við aðra.
Source: Skemman
Language: Icelandic
Subfield: Epidemiology
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7024545301
Cites: 51
Cited by:
Related to: 10