Samfélagsmiðlar og áhrif þeirra á sjálfsmynd unglinga
Year: 2018
Type: dissertation
Abstract: Í nútíma samfélagi virðist sem að flestir unglingar séu með nýjustu gerðina af snjallsímum og allar gerðir samfélagsmiðla. Áhugavert er að skoða hvort notkun samfélagsmiðla hafi jákvæð eða neikvæð áhrif á sjálfsmynd unglinga. Rannsóknarspurning þessarar ritgerðar er varpa ljósi á þau mögulegu áhrif samfélagsmiðla og þá helst miðlanna Snapchat og Instagram á sjálfsmynd unglinga í 8. til 10. bekk. Út frá niðurstöðum ritgerðarinnar má segja að samfélagsmiðlar geta bæði haft neikvæð og jákvæð áhrif á sjálfsmynd unglinga en jákvæðu áhrifin gætu samt haft neikvæðar afleiðingar í för með sér. Rannsóknir sýna fram á það að notkun samfélagsmiðla geti valdið neikvæðum áhrifum á andlega heilsu unglinga og hvernig þau líta á sjálfan sig. Forvarnir og fræðsla eru þeir þættir sem eru taldir vera mikilvægastir til þess að sporna við neikvæðu hliðum samfélagsmiðla. Samstarf skóla, foreldra og frístundastöðva er talið vera lykilatriði til þess að halda úti góðu forvarnarstarfi varðandi samfélagsmiðla út frá niðurstöðum. Ef gott samstarf er á milli þessara aðila er hægt að vinna gegn skaðsemi samfélagsmiðla og sjá til þess að allir séu vel upplýstir.
Source: Skemman
Author: Hjörleifur Steinn Þórisson 1993
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Sociology and Political Science
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7024579864
