Work

Skuldbinding til náms: Tengsl við stuðning foreldra og eftirfylgni, trú á eigin getu, skólahegðun í grunnskóla og vissu um námsval

Year: 2015
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Markmið þessarar rannsóknar er að kanna tengsl stuðnings foreldra og eftirfylgni, trúar nemenda á eigin getu í námi, fyrri skólahegðunar og vissu um námsval við skuldbindingu nemenda til náms (e. student academic engagement) í framhaldsskóla, að teknu tilliti til kyns og menntunar foreldra. Rannsóknin byggir á gögnum úr skimunarprófi sem var lagt fyrir í 17 framhaldsskólum, víðs vegar um land haustið 2013. Þátttakendur í rannsókninni voru 2383 nýnemar í framhaldsskóla, flestir 16 ára. Niðurstöður fjölbreytuaðhvarfsgreiningar sýndu að því meiri sem trú nemenda var á eigin getu í námi, því vissari sem þeir voru um námsval í framhaldsskóla, því betri sem fyrri skólahegðun var og því meiri tilfinningalegan stuðning sem þeir fengu frá foreldrum, því meiri var námsleg skuldbindin þeirra í framhaldsskóla. Jafnframt kom fram að stúlkur voru að jafnaði skuldbundnari námi að teknu tilliti til fyrr¬greindra þátta. Stuðningur og eftirfylgni foreldra er afar mikilvæg í námi og lífi ungmenna í framhaldsskóla en stuðningur í tengslum við skuldbindingu til náms er sérstaða þessa verk¬efnis. Niðurstöður þessarar rannsóknar benda eindregið til mikilvægis stuðnings og eftirfylgni foreldra og þátttöku þeirra í daglegu lífi barna sinna.
Source: Skemman
Author: Elín Rut Ólafsdóttir 1960
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7024620262
Cites: 68
Cited by: 2
Related to: 10