Year: 2015
Type: dissertation
Abstract: Framþróun tækninnar hefur verið gríðarlega hröð á síðustu áratugum og hefur skólastarf breyst samhliða þeirri þróun. Síðan tölvur komu á markaðinn á áttunda áratug síðustu aldar hefur tækninni fleygt mikið fram og nú eru spjaldtölvur að hefja innreið sína í skólastarf. Árið 2013 hófst þriggja ára innleiðingarferli spjaldtölva í skólastarf í grunnskólum Reykjanesbæjar. Markmið þessarar meistaraprófsritgerðar til M.Ed. gráðu er að varpa ljósi á það starf sem unnið hefur verið við að innleiða spjaldtölvur í skólastarf á unglingastigi grunnskóla Reykjanesbæjar. Lagt var upp með að skoða upphafið, innleiðinguna, þau vandamál sem upp hafa komið í ferlinu og svo hugmyndir um áframhaldandi vinnu með spjaldtölvur í skólastarfi. Gerð var eigindleg rannsókn með níu þátttakendum en þeir voru fræðslustjóri, skólastjórnendur og kennarar sem áttu þátt í innleiðingarferlinu í þeim fimm grunnskólum Reykjanesbæjar sem innleiddu spjaldtölvur í daglegt starf á unglingastigi. Gagnaöflun fór fram í janúar og febrúar 2015 og var í formi viðtala. Niðurstöður sýndu að mikið starf hafði verið unnið við að innleiða spjaldtölvutækni í nám og kennslu í bæjarfélaginu. Spjaldtölvur voru notaðar í daglegu starfi á unglingastigi í öllum fimm grunnskólunum og sögðu þátttakendur jákvæðar undirtektir ríkjandi meðal nemenda, foreldra og starfsfólks. Ekki voru forsendur til þess að leggja mat á innleiðingarferlið þar sem því var ekki lokið þegar rannsóknin fór fram.
Source: Skemman
Author: Guðrún Gunnarsdóttir 1988
Institution: University of Akureyri
Language: Icelandic
Subfield: Education
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7024622505
