Sofðu rótt í alla nótt : svefnbreytingar hjá fólki með Alzheimers-sjúkdóm, úrræði og áhrif á maka
Year: 2015
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Bakgrunnur: Erlendar rannsóknir sýna að svefntruflanir og breytt svefnhegðun er algeng hjá einstaklingum með Alzheimers-sjúkdóm. Makar og aðrir umönnunaraðilar Alzheimers-sjúkra upplifa álag og erfiðleika tengt svefntruflunum þeirra síðarnefndu. Hérlendis hefur ekki áður verið gerð rannsókn á svefnbreytingum Alzheimers-sjúkra sem búa utan stofnana. \nTilgangur: Að afla upplýsinga hjá mökum um svefnbreytingar hjá heimabúandi einstaklingum með Alzheimers-sjúkdóminn og hvaða úræðum og meðferð er beitt. Einnig hvort makarnir hafi fengið upplýsingar um slíkar svefnbreytingar, hvort þær valdi þeim álagi og hvort þeir telji sig þurfa meiri fræðslu og stuðning vegna þeirra. Að auki að kanna hvort munur væri milli kynja á notkun úrræða og þörf fyrir fræðslu. \nAðferðafræði: Rannsóknin var lýsandi þversniðskönnun. Þátttakendur voru 65 makar fólks með Alzheimers-sjúkdóm sem bjuggu á eigin heimili. Gagnaöflun fór fram frá janúar til marsloka 2014. \nNiðurstöður: Þriðji hver maki taldi svefnvandamál vera til staðar. Algengustu svefnbreytingar voru að þeir Alzheimers-sjúku svæfu meira á hverjum sólarhring (60%) og að svefnvenjur þeirra væru óreglulegri (46%). Ríflega þriðjungur þátttakenda taldi að nætursvefn þeirra sjálfra yrði fyrir röskun a.m.k. fjórar nætur í viku vegna atferlis/svefntruflana makans og 35% þátttakenda taldi að svefntruflanir eða svefnvandmál maka þeirra yllu þeim oft álagi eða miklum erfiðleikum. Algengasta úrræðið var lyfjagjöf. Einungis 17% þátttakenda taldi sig þurfa meiri aðstoð og stuðning vegna svefntruflana maka síns. Meirihluti þátttakenda (71%) sagðist ekki hafa fengið upplýsingar um svefntruflanir tengdar Alzheimers-sjúkdómnum en tæplega helmingur vildi meiri fræðslu og upplýsingar um svefntruflanir og möguleg úrræði. Ekki kom fram kynjamunur á notkun úrræða eða ósk um frekari fræðslu. \nÁlyktanir: Niðurstöður rannsóknarinnar eru sambærilegar niðurstöðum erlendra rannsókna og sýna að svefnvandamál Alzheimers-sjúkra á Íslandi, sem búa heima, eru algeng. Þau reynast mökum þeirra oft erfið og algengasta úrræðið er lyfjagjöf. Fræðslu og miðlun upplýsinga til maka um svefntruflanir og möguleg úrræði virðist ábótavant. Einnig mætti efla stuðning við maka sem tekur mið af sértækum þörfum þeirra og hinna Alzheimers-sjúku. \n \nLykilhugtök: Alzheimers-sjúkdómur, heilabilun, svefntruflanir, úrræði við svefntruflunum, umönnunaraðilar. \n \n
Source: Skemman
Author: Elísa Rán Ingvarsdóttir 1973
Institution: University of Akureyri
Language: Icelandic
Subfield: Psychiatry and Mental health
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7024647634
