Work

Samfélag markar sér stað : landnám í gamla Vesturbænum

Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Verkefnið Samfélag markar sér stað; landnám í gamla Vesturbænum er 10 eininga meistaraverkefni frá listkennsludeild Listaháskóla Íslands. Lokaverkefnið fjallar um borgaralega óhlýðni þar sem íbúar taka sig saman og hefja ræktun á borgarlóð sem hefur í yfir 10 ár staðið í órækt vegna loforða sem borgin gaf rússnesku rétttrúnaðarkirkjunni. Skortur er á grænum svæðum í hverfinu og virðist hver lausa spildan á fætur annarri fara undir steypu. Lítill vilji, eða geta, virðist vera innan Reykjavíkurborgar til að hlusta á raddir íbúa er kemur að lýðheilsusjónarmiðum eins og tvö nýleg dæmi í hverfinu hafa sannað (Arnar Þór Ingólfsson, 2023; Reykjavíkurborg, 2020). Á þeim tímapunkti sem ég fer af stað með verkefnið er lóðin aftur komin í hendurnar á borginni og ekkert fyrirhugað á henni. Var því ekki eftir neinu að bíða en að hefjast handa og sýna viljann í verki; virkja nærsamfélagið og reisa ræktunarstað í formi gróðurhúss eða beða sem myndi laða að sér íbúa og verða vettvangur fyrir samvinnu, samveru og samtal. Íbúum gæfist kostur á að rækta grænmeti en um leið vináttu og tengsl, deila reynslu og þekkingu þvert á kynslóðir, þjóðerni og samfélagsstöðu. Samfélagsgarðurinn yrði, eins og nafnið gefur til kynna, samfélagslegt verkefni og gróðrarstöð – bæði í bókstaflegri og yfirfærðri merkingu þess orðs.
Source: Skemman
Author: Magnea Guðrún Gunnarsdóttir
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7024649117
Cites: 23
Cited by:
Related to: 10