Work

Starfshönnun og starfstengd viðhorf lífeindafræðinga

Year: 2023
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Lífeindafræðingar stunda rannsóknir og greiningar á lífsýnum og eru nokkuð falin stétt innan heilbrigðiskerfisins. Lítið er til af rannsóknum um starfshönnun og upplifun hjá lífeindafræðingum og þessi rannsókn er liður í að bæta úr því. Markmiðið er að auka þekkingu á þáttum sem lúta að starfshönnun og viðhorfi til starfsins meðal lífeindafræðinga og bera þær niðurstöður saman við svör hjúkrunarfræðinga á sömu þáttum. \nHönnun starfa tekur m.a. á verkefnum, þekkingu, ábyrgð, samskiptum og tækni auk tímaramma og samþættingu við önnur störf. Sýnt hefur verið fram á að starfshönnun hefur mikil áhrif á upplifun og hegðun starfsmanna. Viðurkenndir og áreiðanlegir spurningalistar um starfshönnun, starfsánægju, kulnun og áform um starfslok sem áður höfðu verið notaðir hér á landi í alþjóðlegri rannsókn voru lagðir fyrir lífeindafræðinga snemma árs 2023. Þetta er megindleg samanburðarrannsókn þar sem svör 65 lífeindafræðinga voru rýnd og borin saman við svör 82 hjúkrunarfræðinga úr alþjóðlegu rannsókninni frá árinu 2018. \nHelstu styrkleikar í starfshönnun, að mati lífeindafræðinga í þessari rannsókn, eru að störfin eru mikilvæg, sérhæfð, fjölbreytt og flókin þar sem þekking lífeindafræðinga nýtist og þeir hafi góðan félagslegan stuðning. Hjúkrunarfræðingar og lífeindafræðingar álíta sig vinna ámóta flókin störf og hafa álíka mikla þekkingu og félagslegan stuðning til þess að sinna þeim. Helstu veikleikar eru að lífeindafræðingar fá takmarkaða endurgjöf bæði frá starfinu sjálfu sem og frá samstarfsfólki. Þá hafa þeir takmörkuð áhrif á hvernig þeir vinna vinnu sína. Líkamlegt álag virðist vera helsti veikleiki hjá hjúkrunarfræðingum en notkun flókinna tækja hjá lífeindafræðingum. Starfsánægja þessara stétta er nokkuð mikil en hjúkrunarfræðingar finna aðeins oftar fyrir kulnunareinkennum og eru marktækt líklegri en lífeindafræðingar til að áforma starfslok.
Source: Skemman
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7024732619
Cites: 35
Cited by:
Related to: 10