Year: 2013
Type: dissertation
Abstract: Tilgangur ritgerðarinnar er að varpa ljósi á sjálfsvígstíðni og ofneyslu áfengis í grænlensku samfélagi ásamt því að skoða stöðu mála varðandi forvarnir og fræðslu í tengslum við þessi vandamál. Það verður fjallað um sjálfsvígstíðni og misnotkun áfengis frá ýmsum sjónarhornum, þar sem gerð er grein fyrir uppruna og þróun ásamt því að stuðst er við kenningarlega nálgun á viðfangsefninu. Grænland hefur gengið í gegnum miklar samfélagslegar breytingar frá miðri 20. öld þar sem afleiðingar má sjá í slæmri líkamlegri og andlegri heilsu innfæddra. Forvarnir og úrræði varðandi þessi vandamál eru nýlega tilkomin á Grænlandi. Það er unnið markvisst að því að sporna við hárri sjálfsvígstíðni með fræðslu og ráðgjöf ásamt því að meðferðarþjónusta er starfrækt fyrir einstaklinga sem misnota áfengi. Niðurstöður ritgerðarinnar leiddu í ljós að þær samfélagslegu breytingar sem hafa átt sér stað á Grænlandi undanfarna áratugi hafa haft neikvæð áhrif á heilbrigði og lífsgæði einstaklinga þar sem há sjálfsvígstíðni og ofneysla áfengis eru vandamál sem erfitt hefur reynst að hafa stjórn á. Niðurstöður gáfu þó einnig til kynna að forvarnir og úrræði eru til staðar sem bendir til þess að verið sé að vinna að úrlausn mála varðandi sjálfsvígstíðni og ofneyslu áfengis á Grænlandi.
Source: Skemman
Author: Unnur Helgadóttir 1988
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Epidemiology
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7024750177
