Work

Tengist bág hagfélagsleg staða fjölskyldna aukningu geðvefrænna einkenna hjá íslenskum unglingum í 10. bekk? : rannsókn unnin upp úr HBSC gagnasafninu

Year: 2018
Type: dissertation
Abstract: Unglingsárin eru mótandi tími og því mikilvægt að huga að líkamlegri og andlegri vellíðan unglinga. Markmið verkefnisins var að skoða hvort tengsl væru á milli bágrar hagfélagslegrar stöðu fjölskyldna á tímum efnahagshrunsins á Íslandi og geðvefrænna einkenna hjá unglingum. Einnig voru samskipti foreldra og stjúpforeldra við unglinga skoðuð og hvort um væri að ræða einhverskonar samvirkniáhrif samskipta og hagfélagslegrar stöðu við geðvefræn einkenni. Stuðst var við gögn fengin úr rannsókninni „Heilsa og lífskjör skólanema” (e. Health Behaviour in School-aged Children; HBSC). Sú rannsókn leitast við að kanna velferð, heilsu og hagfélagslegt umhverfi barna á grunnskólaaldri. Notast var við gagnasafn sem samanstóð af svörum unglinga í 10. bekk á árunum 2006, 2010 og 2014. Hagfélagsleg staða var mæld með fjölskyldu velmegunar-kvarðanum (e. Family affluence scale; FAS). Við útreikninga var notast við Fjölþátta dreifigreiningu (e. fANOVA). Niðurstöður leiddu í ljós tengsl á milli hagfélagslegrar stöðu fjölskyldna og geðvefrænna einkenna sem og tengsla á milli samskipta og geðvefrænna einkenna. Unglingar sem búa við bága hagfélagslega stöðu greindu frá fleiri geðvefrænum einkennum heldur en þeir sem búa við góða hagfélagslega stöðu. Að sama skapi sögðust unglingar sem eiga í góðum samskiptum við foreldra sína finna fyrir færri geðvefrænum einkennum heldur en þeir sem eiga í slæmum samskiptum. Þegar munur á milli ára var skoðaður kom í ljós að einungis var marktækur munur á milli áranna 2006 og 2010 þar sem fleiri greindu frá geðvefrænum einkennum árið 2006 heldur en 2010. Ekki tókst að sýna fram á samvirkni á milli hagfélagslegrar stöðu fjölskyldna og samskipta, á geðvefræn einkenni.
Source: Skemman
Authors: Þórhildur Sigurðardóttir 1993, Rita Stevens 1990, Tinna Dögg Sigurðardóttir 1992
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7024751652
Cites: 39
Cited by:
Related to: 10