Streita, kulnun og trú á eigin getu meðal kennara : kerfisbundin heimildasamantekt á orsökum, einkennum og bjargráðum
Year: 2019
Type: dissertation
Study design: Systematic Review
Abstract: Blikur eru á lofti varðandi yfirvofandi kennaraskort og líðan kennara í starfi meðal annars vegna mikils álags. Mikilvægt er að sporna við flótta kennara úr kennarastéttinni með fyrirbyggjandi inngripum og notkun árangursríkra bjargráða. Tilgangur verkefnisins var að kanna streitu, kulnun og bjargráð meðal kennara og þannig auka skilning á þeim þáttum sem ýta undir streitu og kulnun, auk þess að skoða hvort bjargráð og aukin trú á eigin getu geti dregið úr streitu og kulnun. Notast var við kerfisbundna heimildasamantekt rannsókna frá tímabilinu 2010 - 2017 í gagnabönkunum PsycINFO/Proquest, Web of Science, PubMed/Medline, ERIC, The Cochrane Library, Science Direct (Elsevier), Sage Journal og NIOSHTIC-2. Skilyrði var að fjallað væri um mælitæki sem voru notuð til mælinga á streitu, bjargráðum og kulnun. Notast var við PRISMA flæðirit við greiningu heimilda. Gæði valdra rannsókna voru metin út frá Appraisal tool for Cross-Sectional Studies (AXIS). Sjö rannsóknir uppfylltu sett skilyrði. Niðurstöður sýndu að aðal orsakaþáttur kulnunar væri streita. Mestu streituvaldarnir voru álag í starfi, ófullnægjandi vinnuskilyrði, slæm hegðun nemenda, lítil sameiginleg ákvarðanataka í starfi, lítil þátttaka foreldra, skortur á viðurkenningu yfirmanna og óljósar kröfur frá stjórnendum. Notkun árangursríkra bjargráða dró úr streitu og kulnun og hafði jákvæð áhrif á andlega heilsu. Notkun árangurslausra bjargráða jók streitu og kulnun og slæma andlega heilsu. Trú á eigin getu dró úr streitu, og notkun á árangurslausum bjargráðum. Niðurstöður gefa vísbendingar um að aðgerða sé þörf til að koma í veg fyrir aukinn flótta kennara úr starfi til að auka starfsánægju og bæta líðan þeirra. Horfa verður til þess að notkun bjargráða getur bæði dregið úr og aukið streitu og kulnun meðal kennara. Skoða þarf betur samspil streitu, kulnunar og notkunar árangursríkra bjargráða auk annarra áhrifaþátta á streitu og kulnun. \nLykilorð: Streita, kulnun, bjargráð, trú á eigin getu, kennarar.
Source: Skemman
Author: Jóna Bjarnadóttir
Language: Icelandic
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7024798479
