Sjúklingamiðuð þjónusta fyrir nýgreinda krabbameinssjúklinga. Kerfisbundin fræðileg samantekt um áhrif og árangur hjúkrunarstýrðrar þjónustu
Year: 2015
Type: dissertation
Study design: Systematic Review
Abstract: Greining krabbameins veldur truflun í lífi einstaklingsins og fjölskyldu hans og mun um þriðjungur þeirra sem greinast upplifa mikla vanlíðan. Á meðan krabbameinsgreindum fjölgar eru víða í heiminum brotalamir í þjónustu við krabbameinssjúklinga; skortur á samfelldri þjónustu, vangreining sálfélagslegra vandamála, viðeigandi meðferðir ekki veittar og mikill kostnaður. Víða hefur sjúklingamiðuð þjónusta verið innleidd til að bæta gæði og árangur þjónustunnar. Mismunandi þjónustuform sem hafa það markmið að veita sjúklingamiðaða þjónustu hafa verið þróuð. Hjúkrunarfræðingar eru oft lykilaðilar og fylgja sjúklingunum og fjölskyldum þeirra eftir frá greiningu og í gegnum allt sjúkdómsferlið. Slík hjúkrunarþjónusta ber mismunandi heiti en síðustu ár hefur leiðsögn veitt af hjúkrunarfræðingi (e. nurse navigation) verið að ryðja sér til rúms. \nTilgangur þessarar kerfisbundnu fræðilegu samantektar var að draga saman þekkingu um árangur og áhrif sjúklingamiðaðrar og hjúkrunarstýrðrar þjónustu fyrir nýgreinda fullorðna krabbameins-sjúklinga með það að markmiði að leggja grunn að slíkri þjónustu á Landspítala og að frekari rannsóknum á slíkum íhlutunum. \nLeitað var að rannsóknargreinum á ensku og íslensku í gagnagrunnunum PubMed, Cinahl, Scopus, Web of Science, PsycInfo, Google Scholar og hvar.is, fyrst að slembiröðuðum íhlutunar-rannsóknum en svo að hálfstöðluðum tilraunarannsóknum, í báðum tilvikum á fullorðnum, þar sem hjúkrunarfræðingur var lykilaðili. Tólf rannsóknir fundust; sjö frá Bandaríkjunum og ein frá hverju eftirtalinna landa: Bretlandi, Kanada, Taiwan, Ástralíu og Kóreu. Níu rannsóknanna voru slembiraðaðar og þrjár hálfstaðlaðar. Íhlutunin var leiðsögn veitt af hjúkrunarfræðingi (4), umsjónarhjúkrun (e. nurse case mangement) (2) og þjónusta veitt af sérfræðingi í hjúkrun (5) eða krabbameinshjúkrunarfræðingi sem stuðlar að samræmingu í þjónustu (e. cancer nurse care coordinator) (1). Í öllum tilfellum var sjúklingunum fylgt eftir frá greiningu, allt frá fjórum vikum upp í tvö ár. Gæði rannsóknanna voru metin samkvæmt aðferð Whittemore og reyndust tíu greinar vera af góðum gæðum og tvær meðalgóðum. \nNiðurstöður þeirra rannsókna sem gerðar hafa verið benda til þess að mismunandi form sjúklingamiðaðrar hjúkrunarþjónustu geti aukið ánægju með þjónustu, bætt lífsgæði, bætt sálræna líðan, minnkað óvissu og fækkað vandamálum sem tengjast sjúkdómnum og meðferðum við honum. \nÞörf er á íhlutunarrannsóknum til að meta árangur innleiðinga á sjúklingamiðaðri hjúkrunarþjónustu fyrir nýgreinda fullorðna krabbameinssjúklinga. \nLykilorð: Patient navigation, nurse navigation, professional navigation, patient-centered care, cancer, oncology, neoplasm, oncology nurse, case manager, care coordination, continuity of care, pivot nurse, advanced practice nurse, clinical nurse specialist, nurse-led, intervention og program.
Source: Skemman
Author: Kristín Sigurðardóttir 1970
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Topic: Cancer survivorship and care
Subfield: Oncology
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7024800056
