Sjálfsmynd og kynheilbrigði unglinga
Year: 2011
Type: dissertation
Abstract: Sjálfsmynd hvað varðar kynhegðun og kynheilbrigði unglinga hefur fengið aukna athygli á síðustu árum og rannsóknir sýna að sjálfsmynd hefur mikið að segja þegar kemur að kynhegðun þeirra. Tilgangur þessa fræðilega yfirlits var að skoða hvort að sjálfsmynd hafi áhrif á kynheilbrigði unglinga og hvort um kynjamun sé að ræða. \nNiðurstöður sýna að sjálfsmynd hefur áhrif á kynheilbrigði unglinga og er mismunandi milli kynja. Veik sjálfsmynd hefur víðtæk áhrif á unglinga sem getur leitt til áhættuhegðunar oft í formi áfengis- og vímuefnaneyslu sem marktækt tengist óábyrgri kynhegðun. Sterk sjálfsmynd stúlkna eykur líkur á að þær stundi ábyrga kynhegðun sem felst í því að byrja síður að stunda kynlíf snemma á unglingsárunum, eiga færri rekkjunauta og vera líklegri til að nota getnaðarvarnir. Sterk sjálfsmynd drengja eykur líkur á óábyrgri kynhegðun þeirra en hins vegar hafa áhrif sjálfsmyndar á kynhegðun drengja lítið verið rannsökuð. Þessi fræðilega samantekt dregur fram mikilvægi sjálfsmyndar í ábyrgri kynhegðun sem getur reynst gagnleg við forvarnafræðslu unglinga og í þeirri forvarnafræðslu sem Forvarnarfélagið Skjöldur stendur fyrir. \n \nLeitarorð: Unglingar, sjálfsmynd, sjálfsálit og kynheilbrigði.
Source: Skemman
Authors: Elva Dögg Valsdóttir 1985, Sif Sigurðardóttir 1986
Language: Icelandic
Subfield: Clinical Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7024839880
