Work

Sýn leikskólakennara og starfsfólks leikskóla á aukinn tíma og rými fyrir leik barna

Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Markmið rannsóknarinnar er í fyrsta lagi að varpa ljósi á viðhorf leikskólakennara og starfsfólks til sjálfsprottins leiks. Í öðru lagi að skoða hvaða breytingar á skipulagi leikskólans geta gefið sjálfsprottnum leik aukið rými. Með því er átt við hvað það sé í skipulagi leikskólans sem leikskólakennurum og starfsfólki finnst að mætti endurskipuleggja með það í huga að börn fái meiri tíma og rými til að þróa sjálfsprottinn leik. Tilgangurinn með rannsókninni er að finna leiðir til þess að gefa börnum langan og samfelldan tíma til að leika sér.\t \n \tRannsóknin er byggð á eigindlegri aðferðarfræði þar sem gagna var aflað með hálfopnum viðtölum við sex leikskólakennara og starfsfólk leikskóla. Allir þátttakendur rannsóknarinnar höfðu langa starfsreynslu og fjórir af sex voru leikskólakennarar. Með því að nota hálfopin viðtöl var verið að leitast eftir að fá fram viðhorf þátttakenda um rannsóknarefnið og upplifun þeirra á skipulagningu leikskólastarfsins og þar á meðal kaffitíma starfsfólks. Þátttökuskólinn er staðsettur á höfuðborgarsvæðinu og hefur starfsaðferðir Reggio Emilia að leiðarljósi. \t \n \tMeginniðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að allir þátttakendur töldu sjálfsprottinn leik barna vera mikilvæga námsleið sem þyrfti að standa vörð um. Hlutverk þeirra sem leikskólakennarar og starfsmenn leikskóla væri að vera til staðar í leik barna til að geta gripið námstækifæri og aðstoðað við félagsleg samskipti. Auk þess upplifðu þátttakendur viðhorfsbreytingar vegna mikillar starfsmannaveltu síðast liðin tvö ár, þar sem gildi sjálfsprottins leiks virtist minna hjá starfsfólki, sem talið var hafa áhrif á þann sveigjanleika sem þyrfti að vera í dagskipulagi deilda til að veita börnum góðan tíma og rými til að þróa leik sinn áfram. Var áberandi hversu óánægðir þátttakendur voru með núverandi skipulag kaffitíma starfsfólks vegna tímaleysis og álags sem hann skapaði inn á deildum. Auk þess var óánægja með uppbrot sem hann olli á sjálfsprottnum leik barna og öðru faglegu starfi. Viðhorf og gildi þátttakenda virtist vera jákvætt og faglegt hvað varðar sjálfsprottinn leik og þess tíma og rými börn þyrftu. Einnig voru allir meðvitaðir um mikilvægi hlutverks síns í leik barna. Þrátt fyrir hversu mikið skipulag kaffitíma starfsfólks truflaði leikinn höfðu engar breytingar verið gerðar á því til að gefa sjálfsprottnum leik meiri tíma og rými.
Source: Skemman
Author: Íris Ósk Karlsdóttir
Language: Icelandic
Subfield: Education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7024945028
Cites: 35
Cited by:
Related to: 10