Tengsl líkamsímyndar við líkamsþyngdarstuðul og hagfélagslega stöðu og þróun þeirra yfir tíma meðal íslenskra unglinga
Year: 2018
Type: dissertation
Abstract: Tíðni ofþyngdar og offitu hefur aukist á heimsvísu meðal barna, unglinga og fullorðinna. Afleiðingarnar má sjá í aukinni tíðni sjúkdóma á borð við sykursýki tegund 2, hjarta- og æðasjúkdóma, háþrýsting og tilteknar tegundir krabbameins. Ofþyngd og offita hefur einnig áhrif á líkamsímynd á þann veg að börn og ungmenni sem hafa háan líkamsþyngdarstuðul hafa tilhneigingu til þess að meta líkamsímynd sína verr en börn sem eru í kjörþyngd. Einstaklingur sem elst upp við lakar hagfélagslegar aðstæður hefur minni lífslíkur, verri andlega- og líkamlega heilsu, er líklegri til að eiga við offituvandamál að stríða og glíma við líkamsóánægju. \nMarkmið þessarar rannsóknar var greining tengsla hagfélagslegrar stöðu, líkamsímyndar og líkamsþyngdarstuðuls hjá íslenskum unglingum í 10. bekk grunnskóla árin 2006, 2010 og 2014 og þróun þessara þátta yfir tíma. Rannsóknargögn voru fengin frá íslenska hluta fjölþjóðlegu rannsóknarinnar Heilsa og lífskjör skólanema (e. Health Behavior in School-Aged Children; HBSC) úr fyrirlögn spurningarlistans skólaárin 2006, 2010 og 2014. Notast var við 3.000 einstaklinga slembiúrtak, þúsund einstaklingar frá hverju skólaári og var kynjahlutfall nokkuð jafnt, strákar voru 1.499 (50%) og stúlkur voru 1.477 (49,2%). \nHelstu niðurstöður eru þær að marktæk fylgni var til staðar á hagfélagslegri stöðu yfir tíma á þann veg að velmegun fjölskyldna var lægri árið 2014 miðað við árið 2006 og bilið milli velmegunarhópa minnkaði; þ.e. fleiri unglingar flokkuðust í miðlungs velmegun á meðan færri flokkuðust með mikla velmegun. Hvað þróun yfir tíma varðar reyndist ekki marktækur munur milli ára á líkamsímynd né líkamsþyngdarstuðli. \nHvað varðar tengsl hagfélagslegar stöðu við líkamsþyngdarstuðul og líkamsímynd kom í ljós marktækur munur. Áhrif velmegunar voru með þeim hætti að aukin velmegun hafði tengsl við lægri líkamsþyngdarstuðul og lægri líkamsóánægju. Strákar höfðu hærri líkamsþyngdarstuðul, en stelpur voru marktækt að meta líkamsímynd sína verr en strákar. \n \n \nLykilorð; líkamsímynd, líkamsþyngdarstuðull, hagfélagsleg staða, unglingar
Source: Skemman
Author: Guðný Friðfinnsdóttir 1984
Institution: University of Akureyri
Language: Icelandic
Subfield: Clinical Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7024952489
