Tengsl þarmaflóru mannsins og mótun/þróun sjúkdóma
Year: 2021
Type: dissertation
Abstract: Síðastliðna öld hafa umhverfis og lífstílsþættir mannsins breyst til muna m.a mataræði en þó mismunandi mikið eftir hnattrænni staðsetningu. Örverur í þarmaflóru mannsins og samsetning hennar gegna mikilvægu hlutverki þegar kemur að orkunýtingu úr fæðu, örvun á framleiðslu fruma í þekjuvef, þróun ónæmiskerfisins, stjórn fitusöfnunar og margvíslegum efnasamskipta ferlum. Erfðir spila einhvern þátt þegar kemur að örverusamsetningu en þó eru það aðrir þættir einnig sem hafa áhrif eins og mataræði og lyfjanotkun. Rannsóknir hafa sýnt fram á að sterk tengsl séu á milli þarmaflóru og heilsu þegar kemur að þróun ýmissa sjúkdóma. Þetta eru sjúkdómar á borð við efnaskipta-, hjarta- og æðasjúkdóma, þunglyndi, kvíða, Alzheimer, sykursýki, offitu og Parkinson svo eitthvað sé nefnt. Þarmaflóra mannsins er mjög fjölbreytt sem eykur á flækjustigið við að reyna skilja hvernig örverurnar og umbrotsefni þeirra hafa áhrif á heilsu og þróun sjúkdóma. \nMarkmið verkefnisins er að taka saman rannsóknir og niðurstöður sem hafa verið birtar um þarmaflóru mannsins og áhrif hennar á heilsu manna. \nLykilorð: Þarmaflóra, lífstíll, ójafnvægi þarmaflóru, mataræði, sjúkdómar
Source: Skemman
Author: Guðbjörg María Jensdóttir
Institution: University of Akureyri
Language: Icelandic
Topic: Nutritional Studies and Diet
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7024971500
