Viðhorf til lita. Geta litir haft áhrif á val neytenda á vöru?
Year: 2016
Type: dissertation
Abstract: Mikilvægt er fyrir fyrirtæki að skilja hvað það er sem neytendur heillast að og hvað það er sem hefur áhrif á þá. Slík þekking getur ekki einungis hjálpað fyrirtækjum að auka samkeppnisforskot sitt heldur einnig getur það dregið úr framleiðslukostnaði. Litur er stór partur af vöru og þjónustu í markaðssamfélagi nútímans. Allir litir hafa mismunandi merkingu og túlka neytendur liti á mismunandi hátt, eftir því í hvaða menningarheimi neytandi er staddur, hvað hann er gamall og hvert kyn hans er. Mikilvæg er því að fyrirtæki geri sér grein fyrir því hvaða markað þau séu að fara inn á svo að neytendur fái ekki ranga ímynd á vörunni. En slíkt getur gerst ef að ákveðinn litur stendur fyrir eitthvað ósmekklegt eða á ekki við vöruna sem þeir eru að framleiða. Þó að litur sé spili stórt hlutverk í vali neytandans á vöru er margt annað sem hefur áhrif, eins og menningarlegir þættir, félagslegir þættir, persónulegir þættir og sálfræðilegir þættir. \n\tÍ rannsókn þessari var markmiðið að kanna tengsl lita og vöru við neytendahegðun og upplifun, og var því sett fram rannsóknarspurning sem verkefnið leitast við að svara. Það er, hvort að mismunandi litur á sömu vöru hafi áhrif á verðmat hennar eða skynjun kaupanda á eiginleika vörunnar? Útfrá rannsóknarspurningunni setti höfundur fram sjö tilgátur, eina sem snéri að verðmatinu og hinar um tengsl lits og eiginleika vörunnar. Rannsóknin var megindleg og var aðgengileg um miðjan apríl 2016 á Facebook síðu höfundar. Alls bárust 249 svör. Ákveðið var að notast við mynd af hinni vinsælu Kitchen Aid hrærivél í þremur mismunandi litum, svörtum, bleikum og bláum. Höfundi fannst tilvalið að notast við þá vöru vegna þess að þetta er heimilisvara sem bæði konur og karlar geta notað, einnig er mismunandi verð á vörunni eftir því í hvaða lit hún er og var því tilvalið að athuga hvort neytendur væru tilbúnir til þess að borga meira fyrir ákveðinn lit. \n\tHelstu niðurstöðurnar voru þær að það reyndist ekki munur á því hvort að svarendur væru tilbúnir til þess að borga hærra verð fyrir vöru eftir því í hvaða lit hún var í. Þegar spurt var um eiginleika vörunnar útfrá mismunandi litum gáfu niðurstöður til kynna að fyrirfram skilgreindir eiginleikar litafræðinnar áttu sjaldnast við vörurnar. Þeir eiginleikar sem svarendum fannst sammerkt með fræðunum var það að svört vél var talin stílhrein, blá vél var talin köld og bleik vél var talin hlýleg.
Source: Skemman
Author: Kristjana Ýr Þráinsdóttir 1992
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Topic: Color perception and design
Subfield: Visual Arts and Performing Arts
Field: Arts and Humanities
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7025340442
