"Þú ert annað hvort geggjaður eða ömurlegur". Líðan þjálfara í Bestu deild karla, starfsumhverfi og hugmyndafræði þjónandi forystu
Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Vísbendingar eru um að þjálfarar starfi í streituvaldandi og krefjandi starfsumhverfi en fáar rannsóknir liggja fyrir um líðan þjálfara í starfi og upplifun þeirra af starfsumhverfinu. Hlutverk þjálfara er fjölbreytt og umfangsmikið, en fyrir utan þann tíma sem þjálfarinn stýrir liðinu inni á vellinum er ábyrgð hans utan vallar einnig mikil. Viðfangsefnið er ekki síst áhugavert vegna þess að umtalsverður fjöldi yfirgefur þjálfarastarf sitt á hverju ári. Þekking um heilbrigt starfsumhverfi og vellíðan í starfi hefur aukist undanfarin ár og er mikilvægi þess ótvírætt. \nMarkmið þessarar rannsóknar er að öðlast skilning á upplifun og reynslu knattspyrnuþjálfara í Bestu deild karla af starfsumhverfi sínu og líðan þeirra í starfi. Jafnframt er leitast við að kanna hvernig áherslur þeirra í stjórnun endurspegla hugmyndafræði þjónandi forystu. Rannsóknin var framkvæmd með eigindlegri rannsóknaraðferð þar sem tekin voru hálf-stöðluð viðtöl við átta viðmælendur sem allir starfa sem aðalþjálfarar í Bestu deild karla og gögnin þemagreind. \nHelstu niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að starfsumhverfi þjálfara í Bestu deild karla stýrist af miklum kröfum og álagi, sem meðal annars tengist því að starfið er unnið fyrir opnum tjöldum og margir hafa skoðun á þjálfurunum og starfsaðferðum þeirra. Árangurstengdar kröfur eru miklar og upplifa þjálfararnir lítið starfsöryggi. Vinnutíminn er langur og óreglulegur sem getur valdið togstreitu milli vinnu og einkalífs. Niðurstöðurnar veita innsýn í mikið álag í störfum þjálfara sem getur valdið streitu og tilfinningalegri þreytu og þar eru bjargráðin stuðningur, sjálfræði og að endurnæra sig sjálfa mikilvæg til að koma til móts við álagið. Áherslur þjálfaranna sem stjórnendur grundvallast af opnum samskiptum, heiðarleika og virðingu og endurspegla hugmyndafræði þjónandi forystu að miklu leyti. Niðurstöður rannsóknarinnar eru framlag til þekkingar um starfsumhverfi þjálfara og líðan þeirra í starfi og geta haft hagnýtt gildi fyrir íþróttahreyfinguna, stjórnendur íþróttafélaga og þjálfarana sjálfa. \nLykilhugtök: starfsumhverfi, vellíðan í starfi, álag, bjargráð, þjónandi forysta, knattspyrna, þjálfarar.
Source: Skemman
Author: Alexandra Sumarliðadóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Developmental and Educational Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7025352039
