Work

Þátíðarmyndun og stærð íslensks orðaforða tvítyngdra leikskólabarna

Year: 2013
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Orðaforði er mikilvæg undirstaða náms og forsenda lesskilnings. Rannsóknir benda til þess að börn sem eiga annað móðurmál en það sem ríkir í samfélaginu eiga oft erfitt uppdráttar í námi, ekki síst vegna ófullnægjandi orðaforða. Rannsóknir benda einnig til þess að mögulegt sé að efla orðaforða með markvissum aðferðum. Því er mikilvægt að kanna orðaforða tvítyngdra barna strax á unga aldri og grípa til viðeigandi ráðstafanna ef þörf er á. Meginmarkmið þessarar rannsóknar var að kanna stærð viðtökuorðaforða (e. receptive vocabulary) leikskólabarna sem eiga annað móðurmál en íslensku samanborið við jafnaldra þeirra sem eiga íslensku að móðurmáli. Þátíðarmyndun sagna var einnig skoðuð hjá sömu hópum, en færni barna á því sviði þykir gefa góða mynd af almennri stöðu þeirra á máltökuskeiðinu. Þátttakendur voru 43 börn í tveimur efstu árgöngum leikskólans sem eiga foreldra sem báðir hafa annað móðurmál en íslensku. Samanburðarhópurinn samanstóð af 111 eintyngdum íslenskumælandi börnum sem voru á síðasta ári í leikskóla. Tvenns konar mælingar voru lagðar fyrir. Önnur þeirra var orðaforðapróf byggt á PPTV-4 (Dunn og Dunn, 2007) en það hefur verið staðfært og þýtt fyrir íslensk börn (Hrafnhildur Ragnarsdóttir, Steinunn Gestsdóttir og Freyja Birgisdóttir, 2009; Valgerður Ólafsdóttir, 2011). Hin mælingin var stytt útgáfa af þátíðarprófi Hrafnhildar Ragnarsdóttur (2009). Meðaltöl ein- og tvítyngdu barnanna á prófunum tveimur voru borin saman, auk þess sem áhrif dvalartíma á Íslandi, menntun móður, lengd leikskóladvalar, uppruni móðurmáls og kunnátta í móðurmáli á frammistöðu tvítyngdu barnanna í prófunum voru könnuð. \nMeginniðurstöður voru þær að viðtökuorðaforði tvítyngdu þátttakendanna var rúmlega helmingi minni en hjá jafnöldrum þeirra sem eiga íslensku að móðurmáli. Enn meiri munur reyndist vera á frammistöðu hópanna tveggja í þátíðarprófinu, en tvítyngdu börnunum gekk mun verr en þeim eintyngdu að setja bæði veikar og sterkar sagnir í þátíð. Ekki var marktækur munur á stærð orðaforðans hjá tvítyngdum börnum eftir menntun móður, uppruna móðurmáls eða kunnáttu í móðurmáli, en marktæk tengsl voru á milli orðaforða og dvalartíma á Íslandi og orðaforða og lengd leikskóladvalar. Svipaðar niðurstöður fengust þegar tengsl bakgrunnsbreyta við þátíðarmyndun tvítyngdu barnanna voru skoðuð. Dvalartími á Íslandi hafði marktæk áhrif á getu þeirra til þess að leysa það próf, en ekki menntun móður, kunnátta í móðurmáli, uppruni móðurmáls eða lengd leikskóladvalar. Þessar niðurstöður benda til þess að þrátt fyrir að meirihluti tvítyngdra leikskólabarna hafi búið hér á landi frá fæðingu, er kunnátta þeirra í íslensku mun slakari en hjá jafnöldum þeirra sem hafa íslensku að móðurmáli. Þessar niðurstöður eru nokkurt áhyggjuefni þar sem rannsóknir benda til þess að málþroski á leikskólaárunum leggi mikilvægan grunn fyrir gengi í lestri síðar á skólagöngunni.
Source: Skemman
Author: Hulda Patricia Haraldsdóttir 1970
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7025419608
Cites: 53
Cited by: 20
Related to: 10