„Það er samvinnuverkefni okkar allra að börn komist til vits og ára“: Upplifun og reynsla grunnskólakennara á yngsta stigi
Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Undanfarin ár hefur verið lögð áhersla á að veita barnafjölskyldum snemmtækan stuðning þegar koma upp áskoranir í lífi þeirra. Árið 2022 tóku í gildi ný lög hér á landi, lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna (nr. 86/2021) er hafa í för með sér töluverðar breytingar á þjónustu við börn og fjölskyldur þeirra. Rannsóknir hafa sýnt að álag á kennara hefur aukist undanfarin ár vegna aukins fjölbreytileika meðal nemenda sem og fjölgunar á greiningum barna. Markmið rannsóknarinnar var að kanna upplifun grunnskólakennara á yngsta stigi af stuðningi við nemendur með námsörðugleika og fjölþættan vanda í kjölfar farsældarlaganna. Auk þess að varpa ljósi á þær áskoranir sem kennarar standa frammi fyrir í starfi sínu þegar kemur að nemendum með slíkan vanda. Rannsóknin var eigindleg og tekin voru sex hálfstöðluð viðtöl við grunnskólakennara á yngsta stigi. Leitast var við að svara eftirfarandi rannsóknarspurningum: Hverjar eru helstu áskoranir í starfi kennara þegar kemur að nemendum með námsörðugleika og fjölþættan vanda? Hver er upplifun grunnskólakennara á yngsta stigi af stuðningi við nemendur með námsörðugleika og fjölþættan vanda í kjölfar farsældarlaganna? Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að hvorki sé nægur stuðningur við nemendur með námsörðugleika og fjölþættan vanda né við kennarana sjálfa. Upplifun og reynsla kennara er jafnframt sú að skortur sé á fagfólki innan skólanna í flóknum málum. Auk þess upplifa kennarar áskorun í því að ná að mæta fjölbreyttum þörfum allra nemenda. Niðurstöður sýna jafnframt að upplifun kennara á lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna sé sú að innleiðing laganna sé ekki komin langt á veg innan skólanna. Að mati kennara hefur stuðningur við nemendur í kjölfar laganna ekki aukist. Draga má þá ályktun af niðurstöðum að mikilvægt sé að fjölga fagfólki innan grunnskóla vegna aukins álags á kennurum og skólaumhverfinu. Lykilorð: Kennarar, farsæld barna, snemmtækur stuðningur, þverfagleg teymisvinna.
Source: Skemman
Author: Kolbrún Fjóla Sölvadóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Topic: Child Welfare and Adoption
Subfield: Sociology and Political Science
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7025432836
