Work

Við erum manneskjur

Year: 2017
Type: dissertation
Abstract: Hugsunin stjórnar heiminum er heiti á bók eftir Pál Skúlason sem ásamt kveri Roberts K. Greenleaf, Servant as Leader, voru kveikjan að nálgun þessarar rannsóknar. Tekist er á við þetta fyrirbæri, hugsun mannsins, með vitund og veruleika höfundar að vopni. Rannsóknin er fræðileg aðleiðsla að svari við rannsóknarspurningunni „Hvernig birtist Þjónandi forysta í sjónvarpsþáttunum Baráttan um Bessastaði í júní 2016?“ Til að nálgast svar við spurningunni er leitað í fræðin um Þjónandi forystu, heimspeki Sókratesar í túlkun Platons, Hönnu Arendt og Friedrich Nietzsche og kenningu Sigmund Freud um eðlishvatir. Á grundvelli þessara hugsuða, ásamt vitund og veruleika höfundar, er rannsóknarspurningunni svarað á þann veg að Þjónandi forysta birtist í Leo og hjúkrunarfræðingi McMurphy í sjónvarpsþáttunum Baráttan um Bessastaði í júní 2016.
Source: Skemman
Author: Signý Sigurðardóttir 1963
Institution: Bifröst University
Language: Icelandic
Subfield: Philosophy
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7025439239
Cites: 13
Cited by:
Related to: 10