Work

"You just need to have competence in all this : digital competence of older people in Iceland

Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Stafræn tækni og internetið hafa umbylt þeim heimi sem við búum í. Nýr veruleiki 21. aldarinnar hefur áhrif á flesta íbúa þróaðra samfélaga og þrýst fólki á öllum aldri til að nota internetið til daglegra athafna eins og samskipta, banka- og heilbrigðisþjónustu og fleira. Eldra fólk hefur aukið netnotkun sína á undanförnum árum og er einn þeirra hópa sem finnur hvað mest fyrir þessari tækniþróun. Rannsóknir hafa sýnt að eldra fólk skortir stafræna hæfni og færni á internetinu og mætir þ.a.l. ýmsum áskorunum sem geta haft miður góð áhrif á þau sem eiga í hlut sem og samfélagið allt. Lítið er vitað um stafræna hæfni íslenskra eldri borgara nema það hversu virkur hópurinn er á netinu. Engu að síður bendir nýleg könnun til þess að eldra fólk á Íslandi skeri sig ekki úr þegar kemur að færni á internetinu samanborið við jafnaldra þeirra erlendis og eru vísbendingar um að slíkri hæfni sé ábótavant. Rannsókn þessi varpar ljósi á netnotkun og hæfni eldri Íslendinga, með megin áherslu á að kanna hvernig auka megi stafræna hæfni þeirra og þ.a.l. öryggi, sjálfræði og velferð þeirra á netinu. Í því augnamiði voru tekin viðtöl við íslenska eldri borgara og niðurstöðurnar bornar saman við niðurstöður erlendra rannsókna. Sýnt er fram á að öll inngrip sem fela í sér þjálfun eða fræðslu í stafrænni hæfni þurfa að vera getuskipt og fara fram í raunheimum, ekki í gegnum netið. Slíkt gæti reynst kostnaðarsamt og umfangsmikið en sannarlega er til mikils að vinna fyrir þennan hóp sem og samfélagið allt. Rannsóknin hefur ákveðnar takmarkanir enda lítil í sniðum. Hún varpar engu að síður ljósi á netnotknun eldra fólks á Íslandi og stafræna hæfni þeirra. Mörgum spurningum er enn ósvarað og ljóst er að um óplægðan akur í rannsóknum er að ræða, ekki síst þegar kemur að Íslandi.
Source: Skemman
Author: Haukur Brynjarsson
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7025515951
Cites: 28
Cited by:
Related to: 10