Viljalaus fórnarlömb eða hrottafengin skrímsli? Birtingarmyndir ofbeldisfullra kvenna og viðhorf gagnvart þeim
Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Viðhorf gagnvart ofbeldisfullum konum eru gjarnan afar einsleit. Oft er gengið út frá því að þær séu fórnarlömb og dregið allverulega úr gerendahæfni þeirra. Femínískir fræðimenn innan alþjóðasamskipta hafa lagt áherslu á að skoða hvernig félagslega mótaðar hugmyndir um kyn og kyngervi hafa áhrif á þátttöku kvenna innan alþjóðasamfélagsins, þar á meðal þátttöku þeirra í hryðjuverkastarfsemi. Lengi vel var megin hlutverk kvenna innan hryðjuverkasamtaka að fæða nýja kynslóð stríðsmanna og sinna heimilisstörfum en þátttaka þeirra hefur bæði aukist mikið á undanförnum áratugum og hlutverk þeirra hefur tekið miklum breytingum. Konur eru nú beinir gerendur í hryðjuverka- og sjálfsmorðssprengjuárásum. Í þessari tilviksrannsókn er stuðst við fjölmiðlaumfjallanir um níu konur, sem hafa verið ásakaðar um ofbeldisbrot. Rannsóknin var unnin með aðferðum ígrundandi þemagreiningar og voru kóðar búnir til og þemu dregin fram. Kenningarrammi rannsóknarinnar er femínískar kenningar innan alþjóðasamskipta. Áhersla er lögð á kvenleika og karlmennsku, ofbeldishneigð kvenna, þátttöku kvenna í hryðjuverkastarfsemi, sögu sjálfsmorðssprengjuárása sem konur framkvæma, jihadí brúðir og líf kvenna í flóttamannabúðum í Sýrlandi eftir fall ISIS þar í landi. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru þær að breyta þarf orðræðunni um ofbeldisfullar konur og draga úr fórnarlambavæðingu þeirra.
Source: Skemman
Author: Salka Björt Kristjánsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Sociology and Political Science
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7025524390
