Work

„Það þarf heilt þorp til að ala upp barn“ Skipulagning heimakennslu með verkfærum straumlínustjórnunar: sjónarhorn foreldris

Year: 2021
Type: dissertation
Abstract: Heimakennsla hefur ekki verið mikið nýtt innan íslensks skólasamfélags og á Íslandi eru frekar strangar reglur þar um. Foreldrar hafa ekki möguleika á að hafa barn sitt í heima-kennslu nema að þau hafi kennsluréttindi, þó sömu foreldrar gætu ráðið sig til kennslu í hefðbundnum grunnskóla. Raddir foreldra sem hafa áhuga á að fá að kenna barni sínu heima hafa orðið æ háværari á síðustu árum. Þekking á ferlum í kringum heimakennslu er þó af skornum skammti jafnt innan skólasamfélagsins sem og á meðal foreldra. Vöntun er á leiðarvísi fyrir foreldra og á skýrari umgjörð frá menntayfirvöldum. \nMarkmið rannsóknarverkefnisins var að kortleggja heimakennsluferlið, koma auga á hnökra í ferlinu og greina upplifun foreldris af umsjón heimakennslu. Áhersla var á samskipti hagsmunaaðila skólasamfélagsins og hvernig verkfæri straumlínustjórnunar nýtast við skipulagningu og framkvæmd heimakennslunnar. Um er að ræða eigindlega rannsókn þar sem rannsakandi notaði auto-etnógrafíska rannsóknaraðferð. Gögnum er vörðuðu heimakennsluna var safnað og rýnt í upplifun rannsakanda sem kennandi foreldris einkum af samskiptum við hagsmunaaðila, til að mynda fjölskyldu rannsakanda, kennara og starfsfólk úr hverfisskóla. \nHelstu niðurstöður leiddu í ljós að mikil vinna felst í því að skipuleggja og framkvæma heimakennslu og afar mikilvægt er að hafa góð verkfæri við hönd til að halda utan um verkefnið. Straumlínustjórnun nýtist vel við verkefnastjórnun heimakennslu og sýnileg stjórnun gefur góða yfirsýn og utanumhald sem gagnast öllum hagsmunaaðilum. 5S kerfi reynist gott til að skipuleggja heimilið og útbúa rými fyrir kennslu. Við utanumhald á hæfniviðmiðum nemenda nýtist litakóðun og Kanban afar vel. Nemendur fá skilvirkari kennslu og einstaklingurinn er hafður í fyrirrúmi. \nLeitast var eftir að gefa innsýn inn í heim heimakennslunnar og varpa ljósi á hvað felst í henni og hvar hnökrar leynast. Það fylgir því mikið álag fyrir foreldri að sjá um menntun barna sinna og nauðsynlegt er að foreldri finni fyrir stuðningi frá hagsmunaaðilum skólasamfélagsins. Skýrari rammi um samstarf og aðkomu grunnskóla í heimakennslu vantar. Það mætti vissulega endurskoða reglugerð um heimakennslu og menntayfirvöld hafa tækifæri til að auka við kennsluaðferðir í íslensku samfélagi sem gætu komið sér vel fyrir nemendur og samfélagið í heild. \n \nEfnisorð: straumlínustjórnun, heimakennsla, auto-etnógrafísk rannsókn, hagsmunaaðilastjórnun, Ísland
Source: Skemman
Author: Arnrún Sveina Kevinsdóttir
Language: Icelandic
Subfield: Education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7025673292
Cites: 39
Cited by:
Related to: 10